Uppskriftarvefurinn

3.9.2008 20:23:45 / Helga

Jóhanna * Fiskréttir *

Undur góður fiskréttur

 

800 gr ýsa
5 dl nachos (eftir smekk)
2,5 dl rasp
1,5 dl kornflex
smá mjólk
1 egg
salt og pipar

mylur nachos og kornflesið smátt og blandar saman við raspið.
slærð egginu og mjólkinni sem
steikur þetta bara eins og fisk í raspi.

meðlæti
salat
hrísgrjón
salsasósa
hvítlauksbrauð
nachos

 


Bakaður saltfiskur

500 gr saltfiskur
500 gr kartöflur
50 gr smjörvi
½ laukur
½ græn paprika
2 msk hveiti
3 dl mjólk
2 msk parmesanostur
2 msk brauðmylsna

Útvatnaður fiskur er látinn í kalt vatn og suðan látin koma hægt upp ? soðinn í 5-10 mín.
Að suðu lokinni er fiskurinn hreinsaður vel, roð- og beinhreinsaður.
Fiskurinn er losaður sundur og settur í smurt eldfast mót.
Kartöflurnar eru snöggsoðnar, afhýddar og sneiddar ? raðið þeim ofan á fiskinn í mótinu.
Smjörvi er bræddur í potti. Laukur og smátt söxuð paprika látin í krauma í smjörinu þangað þau verða mjúk.
Hveiti er bætt við og jafningurinn hrærður út með mjólk. Á að verða þunnur.
Þessu er hellt yfir fiskinn og kartöflurnar.
Blöndu af osti og brauðmylsnu er stráð yfir og rétturinn bakaður í heitum ofni í 20 mín.

Gott að bera fram með rúgbrauði.


Fiskur með appelsínu- og humarsósu

800 gr ýsa
1 tsk salt
1 tsk olía
1-2 hvítlauksrif
1 dós sýrður rjómi 10%
1/2 dl mjólk
2 msk humarkraftur (Oscar - svört dós)
rifið hýði af 1/2 appelsínu
fersk tímianlauf

Hreinsið fiskinn og skerið í meðalstór stykki og stráið salti yfir þau.
Merjið hvítlaukinn og mýkið hann í olíunni
Bætið sýrða rjómanum, vatninu, humarkraftinum, appelsínuhýðinu og tímianlaufum á pönnuna. Sjóðið augnablik og hrærið í á meðan.
Leggið síðan fiskstykkin á pönnuna og látið þau sjóða í sósunni þar til fiskurinn er orðinn hvítur í gegn. Passið að ofsjóða hann ekki.
Skreytið fiskstykkin með svolitlum rifnum appelsínuberki og stórum rækjum.
Borið fram með soðnum kartöflum og brokkólíi.


 

Kornflögufiskur með kaldri sósu

2 bollar muldar kornflögur
3 tsk rifinn sítrónubörkur
salt og pipar
3 tsk sítrónusafi
4 msk smjör
700-800 gr ýsu- eða þorskflök (roðflett)

Sósan:
3 msk léttmajónes
2 msk sýrður rjómi (10%)
3 msk sweet pickle relish
2 msk sítrónusafi
1 msk sætt sinnep

Setjið kornflögumylsnuna í skál og bætið sítrónuberkinum, salti og pipar út í.
Setjið sítrónusafnn í skál, bræðið smjörið og blandið saman við sítrónusafann.
Skerið fiskinn í 5 sm strimla (fingur) og penslið með smjörblöndunni. Veltið fiskbitunum síðan upp úr kornflögumylsnunni og raðið í ofnskúffuna (notið bökunarpappír undir).
Bakið í 10-15 mínútur.
Útbúið sósuna á meðan fiskurinn er í ofninum. Blandið öllu saman sem á að fara í sósuna og geymið í kæli fram að framreiðslu

 


Chilli fiskur í ofni

350 g fiskslök
½ msk hveit
½ salt
1 dl matreiðslurjómi
¼ chillisósa
1 dl rifinn ostur

1. stillið bakaraofninn á 225° =.
2. smyrjið eldfast mót með orlítilli matarolíu.
3. stráið hveitinu innan í mótið.
4. slerið fiskinn í frekar smáa bita og setjið í mótið,með roðhliðina niður.
5. stráið saltinu yfir fiskinn.
6. blandið saman í skál chillisósu og rjóma , hellið yfir fiskinn.
7. stráið rifnum ostinum yfir fiskinn
8. bakið á næst neðstu hillu í ofninum í u.þ.b 20 mín.
9. berði fiskinn fram með soðnum kartöflum og salati


Grænmetisýsa m/ sítrónu og sojasósu
f. 4

600 g ýsuflök, roðflett
1 græn paprika
1 gul paprika
1 laukur, lítill
3 gulrætur, meðalstórar
2 msk vatn
1 nautakjötsteningur
1 msk sojasósa
2 msk sítrónusafi
salt

Skerið fiskflökin í hæfilega bita og raðið í smurt, ofnfast mót. Skerið paprikur í teninga og sneiðið lauk og gulrætur. Setjið yfir fiskinn. Hitið vatnið og leysið upp nautakjötsteninginn, bætið sojasósu og sítrónusafa saman við. Bragðbætið með salti. Hellið yfir grænmetið og fiskinn. Bakið í 200°C heitum ofni í 15-20 mínútur.


Fiskréttur með piparrótarsósu

ýsuflök
paprika
tómatar
3 msk matarolía
2 tsk sítrónupipar
1 tsk hvítlauksduft

ostur

sósa:
1 box kotasæla
2 msk sýrður rjómi
ca. 1 msk rifin fersk piparrót

Smyrjið eldfast fat og raðið ýsunni í það. Hrærið saman matarolíu, hvítlauksdufti og sítrónupipar og smyrjið vel yfir fiskinn. Brytjið niður papriku og stráið yfir fiskinn. Sneiðið niður tómata og raðið ofan á. Ofninn settur á grill og fatið sett ofarlega í ofninn í 5-6 mín. Þá er það tekið út og rifnum osti stráð yfir. Aftur inn í ofn og grillað í miðjum ofni þar til fiskurinn er hvítur í gegn (ca. 5 mín). Alls ekki of lengi svo fiskurinn verði ekki þurr.

Sósan: öllu hráefninu í sósuna er hrært saman. Matsatriði hversu mikið á að setja út í af piparrót enda er hún mjög missterk. Betra að setja lítið fyrst, leyfa sósunni aðeins að standa og smakka síðan, en það er mjög gott að láta sósuna standa aðeins áður en hún er borðuð.

 

Fiskur m/ pestó

rauðlaukur
hvítlaukur
paprika
tómatar og annað grænmeti sem þér dettur í hug
ýsuflök, sneidd í bita
rautt pestó
fetaostur

Grænmeti sett í botninn á eldföstu móti. Ýsubitarnir smurðir með pestó og settir ofan á grænmetið. Fetaosturinn fer síðan þar ofaná ( gott er að láta mikið af olíunni með). Allt sett í 180°C heitan ofn þar til fiskurinn er orðinn soðinn u.þ.b. 20 mín. Borið fram með hrísgrjónum.

 

Grænmetisfiskréttur í ofni

500 g ýsa
2 msk sítrónusafi
400 g kartöflur
1-2 grænar paprika
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
1 tsk grænmetiskraftur
1/2 tsk hvítur pipar
1/2 tsk salt
1 tsk basilikum
40 g ostur 17%

Skolið fiskflökin, þerrið og bleytið með sítrónusafa. Skrælið kartöflurnar og skerið í sneiðar. Skerið paprikuna í strimla og laukinn í fremur þunnar sneiðar. Pressið hvítlaukinn og hrærið honum saman við tómatana ásamt grænmetiskraftinum og kryddinu. Kartöfl-urnar, laukurinn og paprikan er sett í eldfast mót og tómasósunni hellt jafnt yfir. Setjið lok eða álpappír yfir mótið. Stillið ofn á 220°C og setjið mótið neðst í kaldan ofninn. Þerrið fiskflökin aftur og krydduð með saltinu og piparnum. Bakið grænmetið í um það bil 30 mínútur en leggið þá fiskflökin ofan á, stráið rifnum osti yfir og bakið áfram í 40-45 mínútur. Borið fram t.d. með couscous, hrígrjónum eða brauði og fersku salati.



Fiskur í skyrsósu

skyrsósa:
200 g skyr (1 dós)
1 msk sykur
200 majónes
1 dós sýrður rjómi
1 msk sætt relish
1 msk sætt sinnep
1 tsk karrí

Blandið saman öllu saman.

1 laukur
800 g ýsa
1 rauð paprika
1 græn paprika
1/2 haus blómkál
100 g sveppir
olía til steikingar

Skerið laukinn smátt og setjið í eldfast mót. Skerið fiskinn í bita og leggið ofan á laukinn. Skerið paprikur í bita, blómkál í greinar og sveppi í sneiðar. Steikið í olíu á pönnu og setjið yfir fiskinn. Setjið skyrsósuna yfir allt og bakið við 180°C í 40 mínútur.

 

Fiskur og grænmeti

1 búnt brokkoli
3-4 sveppir
1/2 rauðlaukur

snöggsteikt á pönnu

1-2 fiskflök (skorin í litla bita)
1/2 box Létt-sjávarréttasmurostur
1-2 dl vatn

Setjið létt-sjávarréttasmurost í pott og vatn út í og bræðið. Setjið grænmetið í eldfast mót, síðan fiskbitana og síðast smurostinn. Gott að setja nokkrar ostsneiðar af 11-17% osti yfir. Létt kryddað. Hiti: 200°c í c.a. 20-30 mín.

 

Ýsuflök skorið í bita og sett í eldfast mót, saltað smá yfir
Tómatar sneiddir og settir yfir fiskinn
rauðlaukur sneiddur og settur yfir fiskinn

piparostur bræddur í matreiðslurjóma ( ca 1 peli af rjóma á ost)
sósunni helt yfir fiskinn og brauðrasp stráð yfir og rifnum osti síðast.

Þetta er bakað í ofni í 20 mín. við 180 ° c
gott að borða þetta með kartöflum, fersku salati og hvítlauksbrauði og svo má skipta kartöflunum út fyrir hrísgjón.

 


Hátíðarfiskur  4-5 manns

 

800 gr. Skötuselur eða ýsa

2. saxaðar paprikur

1      sneiddur blaðlaukur

150 gr. Rifinn búri

Paprikuflögur eftir smekk

2½ dl. rjómi

4 msk.hveiti

1 dl.ananassafi eða hvítvín

4 msk. Smjör

2 msk. ólífuolía

1-2 tsk. tómatkraftur

¼ tsk. turmeric

¼ tsk. karrý

1 tsk. ítalian seasoning

½ tsk. þriðja kryddið

1  tsk. salt

½ tsk. pipar

 

Skerið fiskinn í 4 cm sneiðar.Blandið saman með 3 msk. Hveiti , 1 tsk. salti og ½ tsk. pipar.Veltið fiskinum upp úr þessu og steikið í 2 msk. Smjöri og olíunni í ca. 2-3 mín.

 

Látið grænmetið krauma í 2 msk. Smjöri. Bæta 1 msk. Hveiti ásamt ananassafa , rjóma, tómatkrafti

og smá vatni ef sósan er of þykk. Öllu kryddinu bætt við og fisktening.

 

Setja fiskinn í eldfast form og hella sósunni yfir. Blanda osti og snakki saman og strá yfir.

Setja í 180-200 gr. Í nokkrar mín. eða þar til fer að krauma.

 

*

 

fiskiflök afroðuð. Þú sprautar sítrónusafa yfir og lætur vera í smá stund (5-10 mín) og svo þerraru fiskinn. Léttsteikir hann svo uppúr hveiti sem hefur verið kryddað með karrý og sítrónupipar (ekki ofmeta kryddið, frekar mikið en lítið. En það þarf kannski 2-3 skipti til að finna sitt bragð en þú sérð ekki eftir þeim skiptum…mmmm). Svo legguru fiskinn í eldfast mót og sprautar sojasósu yfir allt saman (slatta, þannig að það hafi farið smá á allt saman…) svo helliru rjóma yfir allt saman þannig að það fljóti í rjóma, ostur yfir og inní ofn í einhvern hálf´tima eða eitthvað. Þú sérð bara hvort það hafi ekki bubblað vel í rjómanum og osturinn sé vel bráðinn og bakaður.
Þetta er alveg geðveikt góður réttur með hrísgrjónum og kartöflum. (NB mér finnst soja sosa vond en samt ómissandi í þennan rétt….

 

*

 



Tandori fiskur

(líka hægt að nota kjúlla)


1/2 ferna hrein jógúrt
1 tsk sléttfull karrý
2 tsk kúfaðar tandorí
pipar eftir smekk

Blanda þessu saman

2 ýsuflök skorin í bita og sett í sósuna og látið liggja í henni best í 4 tíma eða svoleiðis en líka hægt að gera strax.

Setja í eldfast mót á 200° í 45-50 mín

AB mjólkursósa sem ég hef með.

1/2 agúrka
1 lítill rauðlaukur
2 rif hvítlaukur
ca 2-3 des ab mjólk

allt brytjað eða raspað niður og pískað saman og sett smá malaður pipar með.

Borið fram með nanbrauði, hrísgrjónum og salati.


Fiskur no 2

1 kg fiskur að eigin vali
3 dl pilsner ég nota bjór hann er eiginlega ódýrari hérna í dk
250 g hveiti
½ dl matarolía
¼ tsk salt
¼ tsk sykur
¼ tsk pipar
1 stk egg
matarolía til steikingar

þetta er eins og uppskriftin á að vera en ég geri þetta þannig að ég set hveiti bara slatta og bjórinn útí stundum egg og svo það krydd sem ég á.

1. stíf þeytið eggjahvítuna.
2. Blandið öllum hráefnunum saman í skál, eggjahvítunni síðast.
3. Látið deigið standa í eina klst.
4. Á meðan er fiskurinn skorinn í hæfilega litla bita og kryddaður með salti og pipar.
5. Hitið matarolíu í djúpsteikingarpotti. / ég set smá olíu svolítið mikið á pönnu og steiki þetta bæti svo við olíu eftir þörfum
6. Veltið fiskinum því næst upp úr deiginu og steikið. Látið renna af fiskinum á eldhúspappír

Sjóða 2 poka af hr´sigrjónum
setja þau í form
flökin yfir
krydda og ost.

Einnig hægt að sitja flök í form
smyrja með smurosti t.d sveppaostu
skera niður skinku,sveppi og papriku
og strá yfir og enda svo með að strá osti,
Meðlæti hr´sigrjón ,s´rusæt sósa og hvítlauksbrauði.


Indverskur fiskréttur

500 g ýsuflök eða þorskflök
2 tsk karrý
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksrif, pressað eða saxað (má vera meira)
1 tsk ferskt engifer, rifið
2 lárviðarlauf
25 gr smjör
2 tsk maizenamjöl
200 g rjómaostur
1/2 - 1 dl rjómi
2-3 msk mango chutney
1 tsk salt
nýmalaður pipar

Látið karrý, lauk, hvítlauk, engifer og lárviðarlauf krauma í smjörinu í u.þ.b. 3 mínútur, takið lárviðarlaufið upp úr. Setjið rjómaostinn út í og hrærið í þar til hann bráðnar, bætið rjóma, maizenamjöli og mangó chutney saman við. Sjóðið við vægan hita í 2 mínútur. Hrærið í allan tímann. Kryddið. Roðflettið flökin og skerið þau í bita. Setjið fiskinn út í sósuna og látið sjóða við vægan hita í 2 mínútur látið standa aðrar 2-3 mín., með lokið yfir pönnunni. Ath. sósan þynnist aðeins eftir að fiskurinn kemur út í. Berið fram með hrísgrjónum og nýju brauði.

 



Frábær fiskréttur

rauðlaukur
hvítlaukur
paprika
tómatar og annað grænmeti sem þér dettur í hug
ýsuflök sneidd í bita
rautt pesto
fetaostur

Grænmeti sett í botninn á eldföstu móti. Ýsubitarnir smurðir með pestó og settir ofan á grænmetið. Fetaosturinn fer síðan þar ofaná ( gott er að láta mikið af olíunni með). Allt í 180°c heitan ofn þar til fiskurinn er orðinn soðinn u.þ.bl. 20 mín. Borið fram með hrísgrjónum.

 

 

Geggjaður fiskréttur

 og mjög einfaldur líka, borinn fram með hrísgrjónum og jafnvel brauði...

Ýsuflök
Paprika
Tómatar
3 msk matarolía
2 tsk sítrónupipar
1 tsk hvítlauksduft
ostur

Sósa:
1 box kotasæla
2 msk sýrður rjómi
ca 1 msk rifin fersk piparrót

smyrja eldfast fat. raða ýsunni í fatið. Hræra saman matarolíu, hvítlauksdufti og sítrónupipar og smyrja vel yfir fiskinn. Brytja niður papriku og strá yfir fiskinn. Sneiða niður tómata og raða ofaná.
Ofninn settur á grill og fatið sett ofarlega í ofninn í 5-6 mín. Þá er það tekið út og rifnum osti stráð yfir. Aftur inn í ofn og grillað í miðjum ofni þar til fiskurinn er hvítur í gegn (ca 5 mín) Alls ekki of lengi svo fiskurinn verði ekki þurr.


sósan: öllu hráefninu í sósuna er hrært saman. Matsatriði hversu mikið á að setja útí af piparrót enda er hún mjög missterk. Betra að setja lítið fyrst, leyfa sósunni aðeins að standa og smakka síðan, en það er mjög gott að láta sósuna standa aðeins áður en hún er borðuð.

 

 

 

Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 163257
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan