Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Karamellukrem

Karamellusósa/krem


230 gr. púðursykur
220 gr. smjör
1 dl rjómi
1 tsk. vanilludropar
Allt sett í pott og hrært stanslaust í þar til suðan kemur upp - hræra í c.a. 3 mín og þá er sósan tilbúin.


Karamellukrem á köku:
1 peli rjómi
120 gr sykur
2 msk sýróp
soðið við vægan hita þar til að þykknar, hrært allan tíman.
60 gr smjörlíki
bætt í og hrært vel. kælt, sett á kökuna.

Heimsins besta karamellukrem

1/2 dl rjómi

12 rjómatöggur

Hita við vægan hita án þess að sjóða og hræra vel, og þú ert komin með heimsins besta karamellukrem.

Heimsóknir
Í dag:  247  Alls: 162986
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan