Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Frönsk súkkulaðikaka

Frönsk Súkkulaðikaka

 

Botn:
4 egg
2 dl. sykur
200 gr. suðusúkkulaði
200 gr. smjör
1 dl. hveiti

Byrjið á að þeyta eggin og sykurinn saman í 10 mín, bræðið síðan súkkulaði og smjör saman við vægan hita og setjið hveitið í lokin. Bakaði í ca. 30 mín við 150° hita(blástur). Botinn á að vera aðeins blautur innan í.

Krem:
150 gr. suðusúkkulaði
75 gr. smjör
1 msk. síróp

Bræðið súkkulaði og smjör saman og setjið síróp í lokin. Látið krem kólna, gott er að láta það aðeins í ískáp. Skreytið síðan með jarðaberjum og berið fram með rjóma.

Heimsóknir
Í dag:  78  Alls: 163123
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan