Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Kleinur

Bestu kleinur í heimi

2 kg hveiti
2 bollar sykur
2 egg
100 gr smjörlíki
10 tsk lyftiduft
2 tsk hjartasalt
1 líter súrmjólk
Kardimommudropar

Þurrefnum er blandað í stóra skál ( geyma 3-400 gr hveiti til að hnoða uppí) Smjörlíki mulið saman við. Þá eru egg, dropar og súrmjólkin sett í miðjuna á þurrefnunum og blandað vel saman og hnoðað. Hnoðið eins mikið hveiti og þarf til að deigið sé ekki blautt. Flatt út og skorið.
Ég nota oftast Palmín feiti eða Djúpsteikingarfeiti. Steikt við góðan hita í góðum potti.

Heimsóknir
Í dag:  71  Alls: 163565
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan