Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Sósur

Sósa með kjöti eða fiski  Nýtt

 

2 sellerístilkar
1 rauðlaukur
2 gulrætur
3 hvítlauksrif
1/4 l kaffirjómi
3 msk sveppasmurostur.
olía til steikingar
salt og pipar

Saxa grænmetið niður og léttsteiki í ólívuilíu, set svo kaffirjómann og ostinn útá og krydda með salti og pipar.

Saumaklúbbasósa

2 msk 18% sýrður rjómi
2 msk púðursykur
2 msk súkkulaðispænir
2 msk þeyttur rjómi
Sletta af appelsínulíkjör t.d. frá Torres

Hræra öllu varlega saman, sérstaklega eftir að þeytti rjóminn er kominn útí til þess að hún skilji ekki.

Ávextir:
melónubitar
bláber
appelsínubitar
Jarðaberjabitar.

Ávöxtunum er skellt saman í litla skál og örlítið af sósunni hellt yfir og þá er kominn þessi dýrindis eftirréttur.
Hægt er að nota hvaða ávexti sem er og einnig er sósan góð út á ís.


Besta sveppasósa í heimi
Fyrir 4-6

4-6 meðalstórir sveppir, ferskir
Smjör til steikingar
1-2 dl. Vatn
½ líter rjómi
1 stk.gráðostur eða smurostur
1 stk. Svínakjötskraftur frá Knorr


Steikið sveppina upp úr smjörinu, setjið svo vatnið yfir þá og látið sjóða í u. þ. b. 1-2 mín, setjið kraftinn og ostin út í og leifið að malla í 2-4 mín. Rjómanum er svo bætt út í en má ekki sjóða. Gott er að hella smá rauðvíni út í áður en sósan er borin fram.

Bernessósa ekta

3 eggjarauður

250 gr smjör

1-2 tsk Bernesessens

Kjötkraftur eftir smekk

½ tsk estragon

Bræðið smjörið í potti, gætið samt að hafa ekki of mikinn hita. Þeytið eggjarauður í skál og hellið bræddu smjöri í mjórri bunu saman við og þeytið um leið.


Rauðvínssósa með sveppum
Rauðvínssósa:

3 dl kjötsoð (vatn og kjötkraftur)
1 laukur, saxaður
1 dl rauðvín
1 tsk tómatmauk
1 lárviðarlauf
sósujafnari

Laukur, lárviðarlauf og rauðvín soðið niður um helming. Soðinu og tómatmaukinu bætt út í soðið og þykkt með sósujafnaranum. Bragðbætið með salti og pipar.



1 laukur
1 msk matarolía
2 dl rauðvín
2 1/2 dl rjómi
1 kjötteningur
(1 fiskteningur) sl. ef sósan á ekki að vera með fiski
salt og pipar

Saxið laukinn og léttsteikið í matarolíu. Hellið rauðvíni saman við og sjóðið saman. Kryddið með kjöt- og fiskteningum, salti og pipar. Sigtið sósuna og bætið rjóma út í.

Rauðvínssósa

Rauðvínssósa:

200 g smjör (við stofuhita)
1 dl rauðvín
4 stk skalotlaukar
1 1/4 dl rjómi
salt og pipar
Steikið laukinn við vægan hita. Hellið rauðvíninu yfir og látið sjóða niður. Bætið rjómanum út í og látið suðuna koma upp. Smakkið til með salti og pipar. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjörinu út í rétt áður en borin er fram.

400 g sveppir
3 stk. laukur
1 tsk. oregano
1 tsk. timian
4 dl rauðvín óáfengt
1 bréf rauðvínssósa, Knorr eða Toro
3 msk. matarolía
Sneiðið lauk og brúnið í heitri olíu, sneiðið sveppina og bætið á pönnuna. Bætið þá kryddi, rauðvíni og rauðvínssósudufti á pönnuna, hrærið vel saman og sjóðið í 2-3 mínútur. Setjið á diska og kjötið ofan á.

Rauðvínssósa

7 dl Soð úr potti
40 g Hveiti
40 g Smjörlíki
1 dl Rauðvín
1 msk Rauðvínsedik
1 msk Rifsberjahlaup
1 dl Rjómi
Svínakjötskraftur

Fleytið og sigtið soðið. Lagið smjörbollu úr smjörlíki og hveiti. Hrærið soðið rólega út í.
Bætið út í rauðvíni, ediki, rjóma og hlaupi. Bragðbætið með svínakjötskrafti ef þurfa þykir.

Sveppasósa

1 box sveppir
3 dl sterkt kjötsoð
5 dl rjómi
½ piparostur

salt og pipar
maizenamjöl


Sveppasósa

250 g sveppir
1 peli kaffirjómi eða rjómi
smjörklípa
1 dós sveppaostur
1 kubbur grænmetiskraftur án MSG
svartur pipar
saxaður graslaukur

Graflaxsósa

4 msk. majones
4 msk. sætt sinnep
4 msk. Dijon-sinnep
3 msk. hunang
2 msk. dill

Blandið öllu saman og pískið vel.



Grillsósa

1 dós sýrður rjómi
safi úr hálfri sítrónu
aromat - svolítið vel af því
svartur pipar
hálfur pakki salthnetur (t.d.marud)

hneturnar eru hakkaðar -ekki mjög fínt (ég set þær t.d í stórt mortel)
sósan hrærð og öllu blandað saman

Kryddsósa:

1 dl. majones
1 dl. sýrður rjómi
1/2 tsk. mulinn pipar
1 msk. sítrónusafi
1 msk. söxuð steinselja
1/2 dl. saxaður blaðlaukur.
Blandið öllu saman og látið standa í kæli í ca. 2-3 klst. fyrir notkun.Gildir fyrir allar sósurnar.

Hvítlaukssósa:

1 dl. majones
1 dl. sýrður rjómi
2 pressuð hvítlauksrif
1 msk. söxuð steinselja
2 msk. sítrónusafi.
Flott að skreyta með steinselju rétt áður en borið er fram.

Tómatkryddsósa:

1 dl. majones
1 dl. sýrður rjómi
3 msk. tómatssósa
1/2 tsk. salt
4-5 dropar Tabasco
1/2 pressað hvítlauksrif.
Flott að strá Cayennepipar yfir áður en borið er fram.

Gráðostasósa:

1 dl. majones
1 dl. sýrður rjómi
100 g gráðostur
svartur pipar eftir smekk.
Stráið svörtum pipar rétt fyrir framreiðslu.

Sinnepssósa:

1 dl. sýrður rjómi
1 dl. majones
1/2 tsk. gróft salt
1 1/2 msk. sítrónusafi
2 tsk. sykur
4 msk. sætt sinnep.
Flott að skreyta með karrídufti

***********

Sýrður rjómi
Fínt söxuð gúrka
Marin hvítlaukur
Blandað saman og láta standa smá :)

***********

Sýrður rjómi
Sætt sinnep
Hungang
Blandað saman, gott með köldum réttum og salötum

**********************************************

Sýrður rjómi
Steinselja
Dill
Sítrónu melisa
Salt og pipar
Gott með fiski

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimsóknir
Í dag:  80  Alls: 163125
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan