Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Skinkuhorn

Skinkuhorn

Bræðir saman við lágan hita ½ líter af mjólk og 100 gr smjör. Hellir svo í skál og stráir einu bréfi af þurrgeri yfir bíður í nokkrar mínútur þar til ylvolgt.

Bætir út í ½ tsk salti og ½ dl af sykri og ca. 800 gr af hveiti og hrærir saman. Lætur svo hefast í ca. 30 mínútur.

Bætir þá ca. 100 gr af hveiti við (gæti verið að þú þyrftir ekki allt hveitið) og hnoðar saman. Skiptir deginu svo upp í nokkar minni einingar og fletur hverja út í hringi, smyrð með skinkumyrju og setur svo rifinn ost yfir og skerð í geira og rúllar upp frá breiðari endanum.

Penslar svo með eggi og stráir yfir birkifræjum. Sett í ofn (200°C) þar til tilbúið ca. 5-10 min.

Skinkuhorn

1. bréf þurrger
2 ½ dl mjólk
100 gr smjörlíki
1 tsk sykur
1 tsk salt
~500 gr hveiti
Sesamfræ

1. Smjörlíkið brætt og mjólkin sett saman við ? hafa blönduna um 35°c heita.
2. Hinum efnunum blandað saman við og allt hnoðað saman þar til það er slétt og samfellt.
3. Deiginu skipt í 2 hluta, sem flattir eru út í tvær kringlóttar kökur sem skipt er í 8 jafna þríhyrnda parta.
4. Vefðu hvern þríhyrning þétt saman frá breiðari endanum. Láttu hornin á smurða plötu.
5. Láttu hornin lyfa sér í c.a. 25 mín.
6. Penslaðu hornin með eggi og settu á þau sesamfræ.
7. Bakaðu hornin í miðju ofni við 250°C í 12 - 15 mín.

Skinkuhorn

100 gr. smjör
900 gr. hveiti
60 gr. sykur
1/2 tsk. salt
1/2 lítri mjólk
1 pakki þurrger (ötker)
Fylling:
1 pakki skinkumyrja

Blandið saman hveiti, sykri og salti og myljið smjörið út í. Hitið mjólkina rétt volga ca. 28 gráður og leysið gerið upp í henni: Hellið mjólkinni saman við þurrefnin og hnoðið. Látið lyfta sér í 40 mín. Hnoðið aftur og látið lyfta sér í 30 mín. Skiptið deginu í fimmm hluta. Hvern hluta á að fletja út í hring og skipta í 8 hluta (alveg eins og gert er með pizzur) setja ca. 1/2 - 1 tsk af skinkumyrju á hvern hluta og rúlla upp í horn. Pensla með mjólk og strá fræum ofan á (má sleppa). Bakist við 200 gráða hita þangað til hornin eru orðin ljósbrún.

Skinkuhorn

 

150 g smjörlíki
3 dl vatn
3 dl léttmjólk
2 tsk sykur
3 tsk salt
2 bréf þurrger
1 kg hveiti
rifinn ostur, eins mikið og maður vill
sesamfræ eða birki
egg
skinka

Bræðið smjörlíkið og hellið vökvanum saman við. Sykur, salt og þurrger sett út í og að endingu hveiti og rifinn ostur (magn að vild). Hnoðið vel. Deigið er tilbúið þegar það hefur sleppt hendi. Látið deigið lyfta sér undir rökum klút í 45 mín. Fletjið út í hring- gott að nota matardisk og skera meðfram honum til að fá góðan hring- og skerið í 8 hluta. Skinka og ostur sett á hvern hluta og rúllað upp frá breiðari endanum. Penslað með eggi og stráð sesam eða birki yfir. Bakið í ofni við 200°C þar til hornin hafa fengið gulan lit og berið þau fram heit. Einnig er hægt að búa til alls kyns brauð úr deiginu, s.s. bollur, smábrauð, snittubrauð o.fl.

Dæmi um fleiri fyllingar í hornin:

1. Stappið saman litlu stykki af gráðosti og örlítilli mjólk.
2. Smyrjið sinnepi á hornin og stráið beikoni og söxuðum lauk á

Skinkuhorn


500 g hveiti
100 g smjörlíki
3 dl vatn
2 tsk. flórsykur (rúmlega)
1 tsk. salt
50 g ger

fylling:
250 g beikonsmurostur
125 g blaðlaukssmurostur
100-200 g skinka
eða
200 g skinka
100 g rifinn ostur
1 bolli steinselja, smátt skorin

Bræðið smjöríkið og setjið vatnið út í. Athugið að blandan á að vera ylvolg. Leysið gerið upp í vökvanum og setjið síðan salt, sykur og hveiti út í. Hnoðið saman í deig en gætið þess að það verði ekki of seigt. Látið deigið lyfta sér dágóða stund og skiptið því svo í þrennt. Fletjið hvern hluta út eins og pítsubotn og skiptið í 8 jafnstóra hluta. Setjið fyllingu á breiðari endann og rúllið síðan upp. Penslið með eggi eða mjólk. Ef tíminn er nægur er gott að láta hornin bíða aðeins áður en þau eru sett í ofninn. Bakið við 200°C í rúmlega 20 mín.


Skinkuhorn

 


1/2 pk ger
1 dl heitt vatn
1/2 dl mjólk
4 dl hveiti
1/4 tsk. salt
1 tsk. sykur
3 msk. hveitiklíð
50 g smjörlíki
1 askja smurostur að eigin vali
1 bréf skinka

Þurrefnum blandað saman. Lint smjörlíki mulið saman við. Mjólk og vatni blandað saman og sett út í. Hnoðað og látið hefast í 30 mín. Flatt út í tvo kringlótta pizzubotna. Hverjum skipt í átta horn. Skinkan skorin í bita og hrært saman við ostinn. Ein skeið af ostablöndu sett á hvert horn og því rúllað upp (byrjað á breiða endanum). Bakað við 200°- 225°C þar til hornin eru orðin falleg á litinn.


Skinkuhorn


2,5 tsk. þurrger
1 dl volgt vatn
1 dl kaffirjómi
2 msk. hunang
75 g smjör
300 g hveiti
1 tsk. salt
1 egg
1 dós skinkumyrja

Leysið gerið upp í volgu vatninu. Hrærið kaffirjóma og hunang saman við, má ekki vera kalt. Myljið smjörið í hveitið, bætið salti út í og blandið saman við gerblönduna. Hnoðið vel. Breiðið plastfilmu yfir. Látið hefast á volgum stað í einn klukkutíma. Skiptið deiginu í 3 kúlur og fletjið þær út í hringi. Skerið hvern hring í 8 þríhyrninga, setjið væna klípu af skinkumyrju á breiðari endann og rúllið þeim upp. Látið hefast í 20 mín. Léttþeytið eggið og penslið hornin með því. Hægt að strá birkifræjum yfir, ef vill. Bakið í 200°C heitum ofni í 12 mín.

Skinkuhorn


5½ - 6 dl hveiti
50 g smjörlíki
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
1 bréf ger
2 dl vatn (ylvolgt)

fylling:
150 g skinka
100 g rjómaostur
2 msk. graslaukur (klipptur)

til að pensla með:
egg
sesamfræ

Blandið gerinu saman við hveitið ásamt sykri og salti. Myljið smjörlíkið saman við. Bleytið í með vatni. Hnoðið deigið jafnt og gljáandi á borði. Skiptið í tvo hluta og hnoðið í kúlur. Fletjið kúlurnar út í hringlótta köku, nálega 25 cm í þvermál, og skerið í 8 þríhyrninga. Saxið skinkuna og hrærið saman við ostinn og graslaukinn. Dreifið fyllingunni jafnt á þríhyrningana og vefjið þá síðan upp í horn og leggið á plötu. Látið hefast í nálega 30 mín (viskustykki yfir). Penslið með eggi og stráið sesamfræjum yfir. Miður ofn,- 225°C í 8 - 10 mínútur.

 

 

 

 

Skinkuhorn

5 1/2 - 6 dl. hveiti,
50 gr. smjörlíki,
1 tsk salt,
1 tsk sykur,
31/2 tsk þurrger,
2 dl. vatn

Fylling: 150 gr. skinka,
100 gr beikonsmurostur, Til að pensla með: egg.

hræra gerið út í ylvolgu vatninu( ég set í skál 1 dl kalt vatn og 1 dl heitt vatn sem er búið að fara í gegnum kaffivél þá er kominn réttur hiti) miljið smjörlíkið saman við hveitið. Blandið salti og sykri í og vætið með gerblöndunni. Hnoða deigið jafnt og gljáandi. Skiptið því í tvennt og eltið það í rúnnar bollur. Fletjið bollurnar út í kringlóttar kökur, ca 25 cm. og skiptið í 8 þríhyrninga. leggið skinkubút ofaná hvert stykki og því næst hrærðum ostinum. vefjið upp í horn og leggið á plötu. Setjið viskastykki yfir og látið hefast á hlýjum stað( ofaná eldavélinni´) ca. 30 mín. Smyrjið með eggi og Bakið þau í miðjum ofni við 225 gráður í 8-10 mín.

 

 

 

Heimsóknir
Í dag:  82  Alls: 163576
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan