Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Sjávarréttir

Humarlasagne  

400 gr humar
8 ferskar grænar lasagnaplötur ca. 10cm x 10cm, soðnar og kældar
100 gr hvítlauksostur
Rifinn ostur
3 cl Sambuca
Sítrónusafi úr ½ sítrónu
Salt
1 msk tómatpuré
1 peli rjómi
2 dl humarsoð

50 gr smjör
8 stór hvítlauksrif, skorin í sneiðar
6 stórir sveppir, skornir í sneiðar
Ca ½ púrrulaukur í sneiðum, skera dökkræna hlutann frá
Rósapipar
Steinselja, fínt söxuð

1.  Kraumið grænmetið í smá smjöri og búið til sósu með tómatpúrru, hvítlauksosti og rjóma, þykkið með smá sósujafnara.

2.  Smjörsteikið humarhala á heitri pönnu (hita smjörið þar til hættir að krauma, passa að smjörið brenni ekki).

3.  Skvettið Sambuca yfir og kreistið sítrónu yfir líka. Setjið sósuna saman við og smakkið til með salti.

4.  Raðið pastaplötum og humar í sósu til skiptis, stráið rifnum osti yfir og setjið undir heitt grillið í ofninum og látið grillast létt.

5.  Þegar þessi réttur er gerður verður að hafa í huga að ekki má ofsteikja humarinn því að hann á eftir að fá smá tíma undir grillinu.

6.  Það má bæði hafa þennan rétt í skömmtum eða í einu stóru formi.


Rækjuréttur grasekkjunnar           


25 gr smjör
2 laukar, saxaðir
150 gr ferskir sveppir, skornir í sneiðar (eða úr dós)
1 msk hveiti
1 tsk karrí
1 tsk paprika
½ tsk svartur pipar
¾ tsk salt
½ dl chilisósa úr flösku (ekki sterk), eða tómatsósa
3 dl rjómi
½ kg rækjur
2 rauðar paprikur, skornar í sneiðar
150 gr rifinn ostur

1.  Bræðið smjörið og mýkið laukinn í því í nokkrar mínútur.

2.  Bætið sveppunum á pönnuna og látið krauma í 3-5 mínútur.

3.  Stráið hveitinu yfir grænmetið og bætið kryddinu út í. Hrærið vel í blöndunni og bætið chilisósunni og rjómanum út í. Sjóðið í 5 mínútur.

4.  Látið renna vel af rækjunum og setjið þær í vel smurt, eldfast mót. Raðið paprikusneiðum yfir og hellið sósunni yfir allt. Stráið rifna ostinum yfir réttinn og bakið við 200°c í 12-15 mínútur.

 Blandaður sjávarréttur        

1-2 dósir hvítlauksrjómaostur (eftir því hvað stendur til)
½ -1 dós sýrður rjómi
½ -1 púrrulaukur
1-3 hvítlauksrif (eftir smekk)
Ca 150 gr sveppir
1 pakki hörpuskelfiskur
250 gr rækjur
100-200 gr lúða, humar eða skötuselur
Salt
Pipar
Karrý
½ -1 súputeningur
Hvítur sósujafnari
Rifinn ostur (ef vill)
1 pakki kartöflustappa frá Otker

1. Sveppirnir eru linaðir á pönnu í örlítilli olíu og kryddaðir með salti og pipar. Settir á disk.
2. Hvítlauksrifin flysjuð, marin og steikt á pönnunni. (Passa verður að brenna ekki).
3. Púrran er þvegin og skorin í þunnar sneiðar og linuð á pönnunni í smá olíu.
4. Sveppunum og hvítlauknum bætt út í ásamt hvítlauksostinum og sýrða rjómanum, súputeningnum og karrýinu og hrært vel saman.
5. Fisknum sem skorinn hefur verið í teninga er bætt út í að undaskildum rækjunum og soðinn í ca 2 mínútur.
6. Búið til kartöflustöppuna og sprautið hringinn í kringum eldfast mót. Bakið í 10 mínútur.
7. Rækjunum er blandað saman við fiskinn á pönnunni og þykkt með sósujafnaranum ef sósan er of þunn og öllu svo hellt í miðjuna á mótinu.
8. Rifnum osti er dreift yfir og brugðið undir grillið uns osturinn er bráðnaður og kartöflustappan hefur tekið lit.

Berið fram með brauði og salati.

Krabbakássa  

½ bolli olía

 

2 stórir laukar, saxaðir

1 hvítlaukur, saxaður smátt

500 gr krabbakjöt

¼ bolli steinselja, söxuð

1 dós Cream of Mushroom súpa

½ bolli brauðmylsna

1 egg, hrært

Salt og pipar eftir smekk

1.        Hitið lauk í olíu; bætið hvílauk út í og síðan krabba, steinselju, súpu, kryddi, brauðmylsnu og hrærðu eggi.

2.      Setjið í smurt eldfast mót og bætið smjörklípum yfir hér og þar.

3.      Bakið við 175° í 25 mínútur.


Sjávarréttasalat með Camembertosti      

1 Camembertostur, saxaður
1 dl rækjur
1 dl kræklingur
½ dl mæjónes
½ dl sýrður rjómi
½ -1 ananashringur, saxaður
2 harðsoðin egg, söxuð
 


1.       Blandið öllu vel saman í skál.

2.     Látið standa í kæli í góða stund áður en það er borið fram.

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 163068
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan