Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Marengs tertur

Dísudraumur.

Svampbotn: 1 stk
2 egg.
70 gr sykur.
30 gr hveiti.
35 gr kartöflumjöl.

Aðferð:
Egg þeytt mjög vel.
Sykrinum bætt út í og þeytt vel saman.
Hveiti og kartöflumjöl sigtað saman,
blandað varlega saman við með gaffli.
Deigið sett í smurt lausbotna tertumót.
Bakað í u.þ.b 12 mín.
Fyrstu 5 mín. við 200°C og síðan við 185°C.


Marengs:
3 eggjahvítur.
150 gr strásykur.

Aðferð:
Eggjahvítur stífþeyttar,
sykri blandað mjög varlega saman við.
Deigið bakað í 2 klst. við 100°C.

Krem:
3 eggjarauður.
4 msk flórsykur.
50 gr brætt súkkulaði
1 peli þeyttur rjómi.

½ lítri rjómi(til að setja á milli og skreyta með;).

Aðferð:
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman.
Brætt súkkulaðið blandað saman við og þeytt á meðan.
Rjóminn þeyttur og öllu blandað varlega saman.

Kakan sett saman þannig:
Fyrst svampbotninn,
síðan u.þ.b 1 cm þykkt lag af þeyttum rjóma,
annað eins af kreminu.
Síðan marengsbotninn og aftur jafnmikið
af þeyttum rjóma og afgangurinn af kremi hafður efst.
Hliðarnar skreyttar með afganginum af rjómanum.
Kakan látin bíða samansett í 6 til 8 tíma.
(gott að setja rjómann ekki á hliðarnar fyrr en
stuttu áður en tertan er borinn fram, gulnar svo fljótt).

Rice crispies tertan góða

4 eggjahvítur
3 dl sykur
1 dl púðursykur
3 bollar rice crispies

Þeytið vel eggjahvítur og sykur saman og blandið svo varlega saman við rice crispies.
Bakað við 150°c í 20 mín og lækkið þá hitann í 100°c og bakið í 20 mín í viðbót. Látið kólna í ofninum ef tími vinnst til.

Krem:
4 eggjarauður
40 gr flórsykur
80 gr súkkulaði
20 gr smjörlíki

Þeytið vel eggjarauður og sykur saman. Bræðið smjörlíki og súkkulaði saman við vægan hita. Botnarnir eru lagðir saman með ¼ l af rjóma og súkkulaðibráðin smurð ofan á kökuna og látin leka niður með hliðunum.




Hlutföll til að nota

 


4 eggjahvítur = 200 gr sykur
6 eggjahvítur = 300 gr sykur
8 eggjahvítur = 400 gr sykur
10 eggjahvítur = 500 gr sykur

 

Marengsterta með karamellubráð

Botnar:
3 eggjahvítur
150 gr púðursykur
80 gr sykur

Þeytið eggjahvítur og bætið báðum tegundum af sykri saman við. Þeytið þar
til sykur er vel uppleystur, smyrjið út tvo botna á pappír (24cm) og bakið
við 150 gráður í 40 mín.

Rjómakrem:
3dl rjómi
1/2tsk sykur
3/4 tsk vanilludropar.
Þeytið rjóma sykur og vanilludropa saman og setjið á milli botnana.

Karamellubráð:
1 dl rjómi
150 gr sykur
40 gr síróp
30 gr smjör
1/2 dl þeyttur rjómi

Setjið rjóma, sykur og síróp saman í pott og sjóðið við vægan hita, þar til
karamellan er farin að loða vel við sleifina. setjið þá smjör og vanillu
blandað saman við , takið af hitanum. Hrærið þar til smjörið er bráðið,
kælið litillega og blandið þeytta rjómanum saman við, kælið þar til hægt er
að setja ofan á tertuna. Kælið svo tertuna í 3-4 tíma áður en hún er borin
fram.

 

 

 

Daim marengsterta

Marengsbotn:
3 eggjahvítur
2 dl. sykur
1 1/2 dl. afhýddar möndlur, (fínhakkaðar)

Stífþeyta eggjahvítur og sykur. Blandið möndlunum varlega saman við.
Baka í 50 - 60 mín. við 150°C

Daim krem:
150 g. Daim súkkulaði, fínhakkað
1 dl. volgt kaffi
3 eggjarauður
3/4 dl sykur
3 dl þeyttur rjómi

Blanda Daim súkkul. og kaffinu saman. Þeyta eggjar. og sykur vel saman. Þeyta
rjómann.
Blanda síðan öllu varlega saman.
Hellið yfir botninn í forminu og setjið í frysti. Kakan þarf að vera minnst 3.
klst. í frysti. Skreytið að eigin vali


Snickers hátíðarterta

Botnar
150 g sykur
3 stk eggjahvítur

Fylling
5 dl rjómi
3 msk sykur
3 stk eggjarauður
2 stk Snickers

Botnar
Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Teiknið tvo hringi á smjörpappír og smyrjið eggjablöndunni inn í hringina. Bakið við 150°C þar til marengsinn er orðinn þurr (u.þ.b. 1 klst.).

Fylling
Þeytið eggjarauður og sykur vel saman og blandið út í það helmingnum af rjómanum. Bræðið síðan Snickers í vatnsbaði og blandið varlega saman við eggjablönduna. Setjið það sem eftir er af rjómanum ofan á annan marengsbotninn, þá helming af eggjablöndunni, síðan hinn marengsbotninn og að lokum afganginn af eggjablöndunni.

Púðursykurmarengs

Botnar:
3 eggjahvítur
150 gr púðursykur
80 gr sykur

Rjómakrem:
3 dl rjómi
½ tsk sykur
¾ tsk vanillusykur

Karamellubráð:
2 dl rjómi
150 gr sykur
40 gr sýróp
30 gr smjör
½ dl þeyttur rjómi

Marensbotnar:
1. Þeytið eggjahvítur og bætið báðum tegundum af sykri saman við. Þeytið þar til sykur er vel uppleystur og smyrjið út tvo botna á bökunarpappír (24 cm).
2. Bakið við 150° í 40 mínútur.

Rjómakrem:
1. Þeytið rjóma, sykur og vanillusykur saman og setjið á milli botnanna.

Karamellubráð:
1. Setjið rjóma, sykur og sýróp saman í pott og sjóðið við vægan hita, þar til karamellan er farin að loða vel við sleifina. Setjið þá smjörið saman við og takið af hitanum.
2. Hrærið þar til smjörið er bráðið, kælið lítillega og blandið þeytta rjómanum saman við, kælið þar til hægt er að setja ofan á tertuna.
3. Kælið tertuna í 3-4 tíma áður en hún er borin fram.

Skreytið með rifnu suðusúkkulaði.


Kornflexterta

4 eggjahvítur
1 ½ bolli sykur
½ tsk lyftiduft
1 bolli kókósmjöl
2 bollar kornflex


Þeytið eggjahvítur og bætið sykri smásaman saman við og syktið svo lyftiduftið útí
Blandið svo kókosmjöli og kornflexi
Varlega saman við
Teiknið 2 hringi á bökunarpappír og og skiptið jafnt á milli
bakað við 150°C í 30 mín

Á milli:
½ dós ferskjur
1 peli rjómi

Þeytið rjómann og skerið ferskjurnar í litla bita
Blandið saman við rjómann
og setjið á milli botnanna
gott að láta stand í kæli í min 4 tím



Salthnetu og Ritskakan (Baby Ruth)

3 eggjahvítur
200 gr sykur
þeytt saman

100 gr. salthnetur
70 gr. ritskex
blandar saman við eggjahræruna
bakað á 175° í 30 mín


Krem:
100 gr súkkulaði
50 gr. smjör
brætt saman

3 eggjarauður
60 gr flórsykur þeytt saman

Blandið saman ( kæla smá súkkulaðibráðið áður en sett saman við flórsykurinn)

Borið fram með þeyttum rjóma eða ís

Jarðaberjaterta

4 stk eggjahvítur
1 bolli sykur
þeytt vel saman

2 bollar kókosmjöl
100 gr súkkulaðispænir
Blandað varlega saman við
bakar á 150° í 30 mín
Þeytir rjóma og stappar jarðaber og setur á milli botnanna.
uppskriftin er í 2 botna.


 

Snickerstertan

4 dl púðursykur
4 eggjahvítur

stífþeytt saman, sett í 2 hringlaga form klædd álpappír og bakað í 2 tíma við 100° blástur.
Slökkvið á ofninum eftir klukkutíma og látið kólna yfir nótt, best að gera þetta að kvöldi.

Daginn eftir er þeyttur 1/2 ltr. af rjóma og sett á milli. Brytja 2 lítil snickers smátt og setja á milli líka.

Setjið svo 2 dl. af rjóma í pott og hitið að suðu. Setjið þá 6 lítil Snickers niðurskorin saman við og hrærið stöðugt í. Látið kólna mjög vel og hellið svo yfir kökuna. Mér finnst best að frysta hana yfir nótt og taka hana út snemma morguns ef ég ætla t.d. að nota hana um kaffileytið. Þá er hún passlega blaut.


 

Mars/snickers terta

4 dl. púðursykur
5eggjahvítur
Þetta stífþeytt saman
Bakað við 130°C í 11/2 tíma (ekki á blæstri)

Á milli:
1/2 l.rjómi
2 stk. Mars/snickers brytjað saman við

Krem:
60 gr. smjör
3stk. mars/snickers.

Þetta er sett í pott og brætt samanog hrært vel á meðan. Síðan eru 5 rauður og 3msk sykur þeytt vel saman og svo mars/snickershrærunni blandað vandlega saman við.



 

Eftirlæti Báru

1 stk púðursykurmarengs
15-25 stk makkarónukökur eftir smekk og stærð scalar
Sherry eða annar líkjör

Rjómablanda

60 gr flórsykur
2 eggjarauður
3 dl rjómi
200 gr rjómasúkkulaði með hnetum

Súkkulaðihjúpur

200 gr suðusúkkulaði
1 dl rjómi

Ávextir eftir smekk
Jarðaber
Vínber
Kiwi
Blabber

Leggið makkarónukökurnar í botn á skál, heilar eða brotnar, hellið víni yfir ( má líka vera ávaxtasafi)
Þeytið eggjarauður og flórsykur, blandið saman við þeyttan rjómann og saxið súkkulaðið, smyrjið þessu yfir makkarónukökurnar, brjótið marengsinn og stingið honum í rjómann. Skerið niður ávexti eftir smekk og raðið yfir.
Hitið 1 dl af rjóma að suðu og hellið yfir suðusúkkulaðið. Látið þykkna aðeins áður en þessu er hellt yfir. Geymið í kæli í ca. 3 klst. Áður en borið er fram.

 

 

MARENGSBOMBA

 

1 púðursykurmarengs
1/4-1/2 L rjómi
2 snickers
2 mars (eða það súkkulaði sem ykkur dettur í hug)
jarðaber
vínber
bláber
kiwi og þeir ávextir sem ykkur dettur í hug!

 

Aðferð:
Marengsinn mulinn niður í form
rjóminn þeyttur og blandað saman við marengsinn
Súkkulaðið brytjað niður og bætt saman við
Ávextirnir skornir niður og settir ofaná, gott að hafa mikið af þeim!

 

Það er mjög gott að setja réttinn inn í ísskáp í smá stund áður en hann er borinn fram því þá nær marengsinn að drekka aðeins rjómann í sig.

 

 

 

 

Heimsóknir
Í dag:  246  Alls: 162985
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan