Laufabrauð
1 l mjólk
50 g smjör
1 kg hveiti
1 tsk lyftiduft
1 msk sykur
Smá salt
Djúpsteikingafeiti til að steikja kökurnar í.
Mjólkin er hituð að suðu, sykur, salt og smjör sett út í. Þá er hveiti og lyftidufti hrært saman við og deigið er hnoðað sprungulaust. Skorið í passlega stórar sneiðar (ca. 1 cm) sem eru flattar mjög þunnt út og skorið undan diski svo brúnirnar verði jafnar. Þá er tekið laufabrauðshjól og skorið munstur í kökurnar. Laufin eru svo brett upp. Kökurnar eru því næst pikkaðar með hnífnum sem notaður er til að fletta laufunum við. Þá eru kökurnar steiktar í vel feiti (eins og kleinur) en passa þarf að laufin snúi niður þegar kakan er sett í pottinn. Munið svo að allan afskurð utan af kökunum er mjög gott að steikja og borða í lokin
)