Afther Eigth ís
með piparmyntusósu.
4 eggjarauður
60 gr sykur
2 tsk vanillusykur
2 ½ dl mjólk
5 dl þeyttur rjómi
150 gr afther eigth saxað.
Þeytið saman eggjarauður og sykur og vanillusykur í hitaþolinni skál þar til blandan er ljós og létt,hitið mjólkina að suðu og hrærið svo saman við,setjið skálina yfir heitt vatnsbað og þeytið þar til þykknar.Kælið.Blandið þeytta rjómanum saman við og frystið. Takiðúr frysti eftir 1-2 klst og hrærið í með gaffli,endurtakið aftur 1-2 tímum seinna og bætið þa´súkkulaðinu saman við.
Sósa:
2 ½ dl rjómi, 15 stk after eigth,50 gr dökkt súkkulaði.
Hitið saman rjóma og afther eigth í potti,og hrærið vel,látið sjóða 2-3 mín.Takið af hitanum og hrærið suðusúkkulaðinu saman við.Berist fram volgt.
1 eggjarauða á móti einum dl af rjóma á móti 1 msk af sykri.
Þeyti eggjarauðu og sykur.
Þeyti rjóma.
Blanda því sem ég vil úti eftir á, vaniludropum og öðru. Ef ég geri súkkulaði ís þá bræði ég helminginn af súkkulaðinu og blanda við eggjahrærinu, og blanda því svo saman við rjómann og hræri söxuðu súkkaulðinu úti.
Dæmi: 5 eggjarauður, 5 msk sykur(eða púðursykur, jafnvel helming og helming, þeytt saman og 5 dl af rjóma.
Bræði 150gr af tobleroni , læt kólna og blanda síðan saman við eggin.
Þeyti hálfan líter af rjóma síðan blanda ég rjómann varlega við eggin
Saxa 150gr. af tobleroni og set útí.
Vanilluparfait (luxusís)
8 eggjarauður, 200 gr sykur, 1 l rjómi, vanilla e. smekk.
Eggjarauður , sykur og vanilla er þeytt vel í skál yfir vatnsbaði við hægan hita þar til blandan er ma´tulega þykk. Látið kólna, hrærið af og til í eða látið hrærivélina sjá um það. Þeytið rjóman og blandið honum varlega saman við blönduna þegar hún er alveg orðinn köld. Sett í form og fryst.
Konfektís.
1 l rjómi léttþeyttur, 8 egg (heil) og 1 1/2 bolli sykur þeytt saman í annari skál og blandað síðan samn við rjóman.
út í blönduna er síðan sett t.d. 100 gr súkkulaði, 100 gr konfektmolar, og 100 gr kirsuber eða annað sem ykkur finnst gott, nb allt í sma´bitum.
Sett í form og fryst.
Einfaldur vanilluís.
8 egg (heil) 0g 1 1/2 bolli sykur þeytt vel saman,
1 l þeyttur rjómi bætt saman við ásmat vanillu e. smekk. Sett í form og fryst
.
ísterta.(algjört nammi)
Botn:
100 gr möndlur, 200 gr marsipan, 100 gr súkkulaði, 100 gr makkarónukökur allt maukað í mixaraa.
Klæðið botn á springformi m. plasti.Setjið gjörðina utan um og dreifið maukinu á botninn.
ís. 12 eggjarauður, 100 gr sykur, 100 gr púðursykur, 2 tsk neskaffi, 8 dl rjómi, 1/2 dl kaffilíkkjör
Þeytið saman eggjarauður,púðursykur og sykur, þeytið rjóman og bætið í með sleikju. Leysið kaffiduftið upp í líkkjörnum og bætið saman við . Hellt í formið og fryst.
Passionís
1 1/4 bolli sykur, 8 egg, 1 l rjómi, 1 bolli passionþykkni, safi eða kjöt úr passion ávöxtum.
Egg og sykur þeytt vel, passionbragðefni bætt saman við hrært vel og fryst.
í þetta ma´auðvitað nota annað, t,d ber að eigin vali mauka þau í mixara og bæta meiri sykri í ef þarf
Tobleornís
6 egg
1 bolli púðursykur (ljós)
Þetta er þeytt vel saman
Svo er bætt í þetta
1.tsk vanilludropar
1/2 l rjómi - þeyttur
100 gr Tobleron - brætt
Öllu blandað vel saman og má frysta í hverskonar ílátum. Ég hef oft sett þetta í kökuform, þá er þetta eins og ísterta, skreytt svo með þeyttum rjóma og jarðaberjum.
Jólaísinn 3 eggjarauður. 1 1/2 dl flórsykur. 100 g Síríus Konsum suðusúkkulaði. 2 1/2 dl rjómi. 2 dl Kellogg\'s Coco Pops. Þeytið saman eggjarauður og flórsykur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið kólna aðeins. Þeytið rjómann. Blandið súkkulaðinu saman við eggjahræruna og hrærið rjómanum ásamt Coco Popsi varlega saman við. Látið í form og frystið.
Tobleornís 6 egg. 1 bolli púðursykur (ljós). Þetta er þeytt vel saman. Svo er bætt í þetta: 1.tsk vanilludropar. 1/2 l rjómi ? þeyttur. 100 gr Tobleron ? brætt. Öllu blandað vel saman og má frysta í hverskonar ílátum. Ég hef oft sett þetta í kökuform, þá er þetta eins og ísterta, skreytt svo með þeyttum rjóma og jarðaberjum.
Vanilluparfait (stór uppskrift) 8 eggjarauður, 200 gr sykur, 1 l rjómi, vanilla eftir smekk (dropar eða sykur). Þeytið eggjarauður, sykur og vanillu í vatnsbaði yfir lágum hita, þar til soffan er hæfilega stíf. Tekin af hitanum og látið kólna, hrærið í af og til (eða notið hrærivélina til þess). Þeytið rjómann og blandið varlega samn við kalda blönduna. Sett í form og fryst. Gott að bera ferska ávexti með og heitri súkkulaðisósu.
Sósan: 100 gr suðusúkkulaði (má líka vera mars) 1/2 dl vatn, 1/2 dl rjómi. Sjóðið saman súkkulaði og vatn í 2-3 mín, bætið rjóma saman við. Ís Þessi er ótrúlega einfaldur og ótrúlega góður. Það er mjög einfalt að setja í hann hvaða bragðefni sem þið viljið en ég enda alltaf í vanilludropunum. Þetta er ís sem er mjúkur og alveg yndislegur.
Leyniupsskrift! 2 pelar rjómi þeyttur. Vanillidropar. 1) 150 gr.sykur 2) 4 eggjarauður 3) 3 egg. 1-2 og 3 þeytt saman þangað til að þetta verður létt og ljóst.þeyttur rjómi og vanilludropar sett saman við og fryst. Þessi er notaður á Aðfangadag heima hjá mér og þá frysti ég hann í hring bökunarformum og ber hann fram með ferskum ávöxtum. Stundum með marens líka.
Konfektís 1 l rjómi léttþeyttur, 8 egg (heil) og 1 1/2 bolli sykur þeytt saman í annari skál og blandað síðan saman við rjómann. Út í blönduna er síðan sett t.d. 100 gr súkkulaði, 100 gr konfektmolar og 100 gr kirsuber eða annað sem ykkur finnst gott, nb allt í smábitum. Sett í form og fryst.
Einfaldur vanilluís 8 egg (heil) og 1 1/2 bolli sykur þeytt vel saman, 1 l þeyttur rjómi bætt saman við ásmat vanillu eftir smekk. Sett í form og fryst
Ísterta (algjört nammi) Botn: 100 gr möndlur, 200 gr marsipan, 100 gr súkkulaði, 100 gr makkarónukökur allt maukað í mixara. Klæðið botn á springformi með plasti. Setjið gjörðina utan um og dreifið maukinu á botninn.
Ís: 12 eggjarauður, 100 gr sykur, 100 gr púðursykur, 2 tsk neskaffi, 8 dl rjómi, 1/2 dl kaffilíkkjör. Þeytið saman eggjarauður,púðursykur og sykur, þeytið rjóman og bætið í með sleikju. Leysið kaffiduftið upp í líkkjörnum og bætið saman við. Hellt í formið og fryst.
Passionís 1 1/4 bolli sykur, 8 egg, 1 l rjómi, 1 bolli passionþykkni, safi eða kjöt úr passion ávöxtum. Egg og sykur þeytt vel, passionbragðefni bætt saman við hrært vel og fryst. Í þetta má auðvitað nota annað, t.d ber að eigin vali mauka þau í mixara og bæta meiri sykri í ef þarf.
Íssósa 100 g suðusúkkulaði. 50 g smjörlíki. 6 msk síróp. Allt sett saman í pott og hitað (ekki á fullum styrk) þar til allt er bráðnað saman. Þetta er í rauninni Rice Krispies uppskrift, vantar bara morgunkornið.
Karamellu-mokka íssósa 1/2 bolli púðursykur. 1/2 bolli síróp. 3 msk. smjör. 1 dl rjómi. 1 tsk. skyndikaffi leyst upp í ögn af sjóðandi vatni. Hitið púðursykurinn, sírópið og smjörið í potti og látið malla í 10-15 mín. Hrærið í á meðan. Takið af hellunni, setjið óþeyttan rjómann og skyndikaffið út í og hrærið saman.
Súkkulaði íssósa 100 g smjörlíki. 200 g suðusúkkulaði. 4 msk. síróp. 70 g salthnetur saxaðar. 1/2 dl rjómi. Hitið smjörlíki, súkkulaði og síróp í potti (sjóðið ekki) og hrærið vel saman. Takið pottinn af hellunni og setjið hnetur og rjóma í og hrærið öllu vel saman. Berið sósuna fram heita með ís.
Sælkera íssósa 100 g Suðusúkkulaði. 2 dl rjómi. Setjið rjómann í pott ásamt súkkulaðinu og bræðið við vægan hita. Berist fram heit.
Uppáhalds ísinn minn.......
1/2 l rjómi
4 egg
9 msk sykur
100 g toblerone
Þeytir egg og sykur saman þangað til það verður létt ,
Þeytir svo rjómann og saxar niður tobleronið.
Og blandar öllu saman og frystir
Namm namm ýkt góður
Jólaísinn
3 eggjarauður
1 1/2 dl flórsykur
100 g Síríus Konsum suðusúkkulaði
2 1/2 dl rjómi
2 dl Kellogg\'s Coco Pops
Þeytið saman eggjarauður og flórsykur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið kólna aðeins. Þeytið rjómann. Blandið súkkulaðinu saman við eggjahræruna og hrærið rjómanum ásamt Coco Popsi varlega saman við. Látið í form og frystið.
Jarðarberjaís.
1 dl sykur, 2 eggjarauður, 3 dl þeyttur rjómi, 280 gr ns jarðarber (stór dós)
þeytið saman sykur og eggjarauður, kremjið jarðarberin í mauk og látið safan renna vel af, bætt samn við og að síðustu þeytti rjóminn settur gætilega saman við. Sett í mót og fryst.
Tobleroneís með baileys
60 gr sykur, 4 egg, 1/2 lítri rjómi þeyttur, 100 gr tobleronesúkkulaði (í bitum eða rifið) 1/2 bolli baileys. 1 bolli nóakropp.
Þeytið saman egg og sykur mjög vel, þeyttum rjóma og súkkulaði blandað saman við, síðan baileysið ( ef það er ekki búið hehe) og að síðustu nóakroppið.
sett í form og fryst.
Bananajógúrtís.
3 dl rjómi, 2 msk sykur, 300 gr bananar, 2 tsk sítrónusafi, 2 ds bananajógúrt (ms skólajóg)
stífþeytið rjóman, með 1 msk af sykrinum. maukið bananan með gaffli og hrærið sítrónusafnaum samn við það,. Blandið jógúrtinni, bananamaukinu og því sem eftir er af sykrinum vel saman og blandið því varlega saman við rjómablönduna. Sett í form og fryst. Gott er að hræra í ísblöndunni af og til meðan hún er að frjósa.
Epla og kanilís.
3 eggjahvítur, 3 dl kaffirjómi, 2 dl eplamauk (fæst víða í krukkum) 1/2 dl sykur, 2 tsk kanill.
Stífþeytið eggjahvíturnar, hrærið samn kaffirjóma, eplamauki, sykri og kanil og bætið eggjahvítunum varlega samn við.Sett í form og fryst. Gott að bera fram með eplum og ískexi.
Koníaksrjómaís.
4 eggjarauður, 4 msk flórsykur, 5 dl þeyttur rjómi,koníak eftir smekk,
þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman, þeyttur rjóminn settur saman við ásamt koníakinu. Sett í form í fryst. Borið fram með ferskum ávöxtum og heitri súkkulaðisósu.
Rjómaís.
1/2 l þeyttur rjómi. 4 egg, 2 dl sykur, vanilludropar og súkkulaði í bitum e. smekk.
Þeyta samn egg og sykur mjög vel, þeyttur rjóminn settur út í, og að síðustu vanilludropar og súkkulaði e.smekk. Sett í form og fryst.
Dajm ís
100 gr sykur, 3 egg, 1/4 rjómi, 1 stórt Dajm
þeyta vel saman sykurinn og eggin, þeyttur rjóminn settur varlega saman við og að síðustu smátt brytjað Dajm súkkulaðið. Sett í form og fryst.
Tobleroneís.
6 eggjarauður, 1 bolli púðursykur, 1 tsk vanilludropar, 1/2 lítri þeyttur rjómi, 100 gr tobleronesúkkulaði í bitum eða rifið.
Þeyta saman eggjarauður og púðursykur, mjög vel, vanilludropum bætt út í og svo þeyttur rjóminn og súkkulaðið. Sett í form og fryst.