Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Humar

referrelative="t" o:spt="75" coordsize="21600,21600">Humar

500g humar
1 dós hvitlauksost
1des rjómi eða kaffirjómi
smá hvitlauksalt
allt sett í pott og hittað humarin allveg siðast

Humarinn er settur í sjóðandi vatn og lokið á. Slökkt undir eftir 3 mín, hella í vaskinn og skelhreinsa.

 

Humar í rjómaostasósu

(fyrir 4-6)

1/2 saxaður laukur
2 msk smjör
11/2 bolli mjólk
300 g hreinn rjómaostur
36-40 humarhalar
1 dós (100 g) sveppir í sneiðum
eða 100 g ferskir sveppir, sneiddir
25 g (1/4 bolli) parmesan, nýrifinn
2 msk söxuð steinselja
1/4 tsk salt

Látið lauk og sveppi krauma í smjörinu í nokkrar mín. Bætið mjólk og rjómaosti út í og hrærið í þar til osturinn er bráðinn. Bætið því sem eftir er út í nema saltinu. Hitið að suðu og látið sjóða í 3 mín. Takið pönnuna af hellunni og látið réttinn standa í 10-15 mín. áður en þið saltið. Verði sósan of þykk má þynna hana með rjóma, mjólk eða hvítvíni. Berið réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og ristuðu brauði.

 

 

                                      

 

Hátíðarpasta með humri og möndlum



500 g Barilla Gnocchi pasta (skeljar)
500 g humar (ekki í skel)
2½ dl kaffirjómi
2 msk ólífuolía
1 stk blaðlaukur
1 msk fersk steinselja
1 dl fiskisoð
1 stk skalotlaukur
½ dl ristaðar möndlur
½ dl þurrt Martini (má nota hvítvín eða mysu í staðinn)
salt og nýmalaður svartur pipar


1. Saxið möndlur og ristið á þurri pönnu. Leggið til hliðar.
2. Skerið blaðlauk og skalotlauk. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn í 5 mínútur. Kryddið með salti og pipar.
3. Bætið humrinum út á pönnuna og steikið í stutta stund.
4. Hellið Martíni út á pönnuna og kveikið í herlegheitunum. (Ef notað er hvítvín er ekki hægt að kveikja í.) Þegar hættir að loga bætið þá fiskisoðinu og rjómanum út á ásamt möndlum og trufflum (ef vill). Látið malla í 2 mínútur.
5. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hellið vatni af og blandið humarsósunni saman við pastað. Skreytið með steinselju og berið fram með góðu brauði og salati.

 

 

 

 

Hvítlauksristaður humar

20 stórir humarhalar
½ rauð paprika
½ rauðlaukur
5 sveppir
½ l. rjóma
skvetta koníak
2 msk. smjör
season al og hvítlauksduft eftir smekk.


Kljúfið humarinn í tvennt og opnið hann, kryddið með season al og hvítlauksduftinu. Saxið grænmetið smátt. Bræðið smjörið á pönnu. Steikið humarinn í skurðinn
í 2 – 3 mín. Setjið smátt saxað grænmetið út á. Hellið skvettu af koníaki út á pönnuna og eldsteikið. Hellið rjómanum út á og látið sjóða niður.
Sett á tvo diska og borðið fram með fersku salati og hvítlauksbrauði.

Verði ykkur að góðu.


 
Humar í skel með ostabráð

Fyrir 6

1,2 kg stór humar í skel
150 g hvítlauks smurostur
200 g smjör
4 stk. hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
1/2 búnt fínt söxuð steinselja
safi úr 1 sítrónu
salt og pipar

Meðlæti
3 stk. sítrónur
8-10 sneiðar franskbrauð eða snittubrauð
hvítlaukssmjör

 

Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 163257
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan