Uppskriftarvefurinn

13.2.2008 05:14:37 / Helga

Hollt og gott

referrelative="t" o:spt="75" />
Túnfisksalat


kotasæla
túnfiskur í vatni
rauðlaukur
egg (ef vill)

Svo má setja hvað sem er í þetta krydd, sinnep, sweet release, rosa gott að setja agúrku verður svo ferskt, sumir setja pipar.

 

Túnfisksalat II

 

1/2 dós sýrður rjómi (9%)
1 dós túnfiskur í vatni (vatninu hellt mjög vel af)
season all
karrý (örlítið)
grófmalaður svartur pipar (slatti)
graslaukur (ferskur eða frostþurrkaður, þarf mikið meira af þurrkuðum)
Laukduft (eftir smekk)
1/2-1 tómatur
1/4-1/2 agúrka

Rjóminn hrærður út, túnfiskurinn hrærður saman við kryddað og látið bíða í 1-2 tíma í kæliskáp. Hrært saman aftur og tómatur og agúrka skorið í litla bita og hrært saman við. Borðr frekar fljótt eftir að það er tilbúið. Þeir sem ekki vilja tómat eða agúrku geta bara sleppt því, en þá verður það ekki eins ferskt!

 

Fiskréttur

 

Ýsa ca 800 gr
sveppir í dós
hrísgrjón

Hrísgrjón soðin og sett í botinn á eldföstu móti fysknum raðað ofaná saltað örlítið
sveppirir ofana hann og svo er sósa

Hú er svona!
8 dl súrmjólk má vera létt súrm
2 tesk sýrður rjómi 10%
karrý eftir smekk ég nota ca 2 mask
sósunnni hellt yfir og svo ost yfir alltsaman og bakað í ca 30 mí!

Ofnbakaður fiskur

2-3 ýsuflök eða annar fiskur (gott að forsjóða í smá stund)
2 pokar hrísgrjón, soðin

Sósan:

1 dós létt smurostur (skinku og beikon)
1/2 dós létt smurostur (sveppa)
1-2 tsk karrý
1-2 tsk laukduft
1 tsk hvítlauksduft
1/2 nautateningur
1 tsk svartur pipar (grófmalaður)
1-2 dl. mjólk

Allt soðið saman í potti og hellt yfir fiskinn og hrísgrjónin sem er búið að raða í eldfast mót.
rifnum osti (eða sneiðum) stráð yfir og bakað í ofni þar til ljósbrúnt að ofan.

 

Grænmeti með  hollustu ídýfu

Gulrætur, gúrka, rófur, allskonar kál (t.d.hvítkál, blómkál, spergilkál) og bara hvaða grænmeti sem ykkur finnst gott hrátt er skorið niður í stöngla og dýft í hollustu ídýfu.

Hollustu ídífa.

1/2 dós sýrður rjómi (9%)
2 tsk laukduft
2 tsk svartur pipar (grófmalaður)
1 tsk hvítlauksduft

allt hrært saman og borðað með bestu lyst með grænmetinu

 

Hummus  (frá Grænum Kosti)

2 hvítlauksrif
1 vænn hnefi steinselja
2 vorlaukar, í litlum bitum
3 bollar soðnar kjúklingabringur (2 krukkur soðnar kjúklingabringur frá De Rit)
(1/2 bolli ósoðnar baunir, lagðar í bleyti yfir nótt í 3 bollum af vatni, skipt um vatn & soðið í ca. 1 ½ klst).
1 dl Tahini (sesamsmjör)
1 dl ferskur sítrónusafi
1 msk Tamari sósa (gerlaus japönsk sojasósa)
¾ - 1 tsk salt
½ tsk cumin
smá cayenne pipar á hnífsoddi

Setjið hvítlauk, steinselju & vorlauk í matvinnsluvél & maukið.
Bætið kjúklingabaunum, Tahini, sítrónusafa, tamari & salti út í & maukið þar til silkimjúkt.
Bragðist til með cumin & cayennepipar.
Njótið.

Þetta er slatti en það má frysta afganginn.


Döðlubrauð

Efni:
200 gr. döðlur
2,5 dl. soðið vatn
2 egg
2 msk. brætt smjör
2 bananar
1 tsk. lyftiduft (hveitilaust úr Yggdrasil hveitilaust eða bara venjulegt)
1 tsk.Matarsódi
1/2 tsk. sjávarsalt.
1 tsk. vanilludropar
300 gr. speltmjöl

Meðhöndlun
Döðlurnar saxaðar smátt, settar í skál og sjóðandi vatninu hellt yfir. Látið kólna. Vatnið ekki sigtað frá. Egg og smjör þeytt saman, stöppuðum bönununum bætt út í. Þurrefnum síðan bætt við. Hrært vel. Að síðustu er döðlunum með vatninu bætt varlega saman við deigið síðan sett í týpískt hringlótt kökuform og bakað við 175° C í u.þ.b. 25 mín. En í 40 mín ef sett er í formkökuform

Kvöldsnarl

500 g kotasæla
1 rauðlaukur
200 g salsasósa, hot
½ agúrka
ca. ½ blaðlaukur
1 rauð paprika
2 sveppir
Melba toast kexkökur (t.d.)


Þeytið kotasæluna í matvinnsluvél.
Blandið svo fínt söxuðum rauðlauknum og salsasósunni saman við og hrærið með skeið.
Hellið blöndunni ígrunnt fat.
Saxið gúrkuna, blaðlaukinn, paprikuna og sveppi smátt og dreifið yfir kotasælublönduna.

Berið fram með Melba-toast kexkökum, öðru góðu kexi eða brauði

Gulrótakaka

Bragðgóð og hentug til frystingar

Efni:
200 gr. döðlur
2,5 dl. soðið vatn
4 egg
4 msk. olía
250 gr. speltmjöl
1 1/2 tsk. lyftiduft (hveitilaust fæst í Yggdrasil, annars bara venjulegt)
1 tsk. kanill
1/2 tsk. kardemommudropar
1/2 tsk. sjávarsalt
250 gr. rifnar gulrætur
100 gr. rúsínur
50 gr. ristaðar afhýddar möndlur eða hnetur

Meðhöndlun
Hitið ofninn í 180° C. Saxið döðlurnar og hellið sjóðandi vatni á þær. Látið kólna á meðan öllu er blandað saman við eggin og olíuna. Setjið dölurnar MEÐ vatninu í mixer og mixið vel og bætið svo út í blönduna. Bætið vatni útí ef ykkur sýnist deigið þurrt. Setjið deigið í smurt hringlótt kökuform og bakið í ca.40 mín, eða þangað til hún er tilbúin.

Pönnubrauð

3 dl spelt
smá salt
½ - 1 dl sjóðandi vatn
1 msk olía
smá spelt til að rúlla út
(sumum finnst gott að setja smá krydd út í)


Blandið saman þurrefnum (og kryddi).
Bætið vatninu smátt & smátt útí & hnoðið þangað til deigið er mjúkt eins og eyrnarsnepill viðkomu.
Skiptið deiginu í 10 hluta, og rúllið hverjum hluta út þar til orðinn er ca. 10 cm í ummál.
Hitið pönnu og steikið brauðin á þurri pönnu, þau blástast upp eins og blaðra & þá er þeim snúið við & steikt áfram í 1-2 mín. þar til gegnum steikt (þó ekki brennd)
Tilbúnu brauðin eru sett inn rakt stykki til þess að þau harni ekki.
Gott er að pensla þau með ólífuolíu áður en þau eru borin fram.

Geggjaðir karríkjúlli

Fyrir : 4

5-6 stk kjúklingabringur, snyrtar og skornar í strimla
salt og pipar
4 hvítlauksrif, söxuð
2,5 dl matreiðslurjómi
½ krukka mangochutney
1 msk karrí
handfylli kóríanderlauf (má sleppa)

Kryddið kjúklingastrimlana með salti og pipar og steikið á pönnu í örlítilli olíu.
Þegar kjúklingurinn er næstum gegnumsteiktur, bætið þá söxuðum hvítlauki, rjóma, mangochutney og karrí út á pönnuna og blandið öllu vel saman.
Látið malla í 15 mín.
Stráið kóríanderlaufum yfir undir lokin.
Berið fram með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði.

Hollur grænmetisréttur.

Kartöflur
frosið grænmeti, brokkoli, blómkál og gulrætur.
Paprika
rauðlaukur
grænmetisteningur
kjúklingateningur
2 msk léttsmurostur með villisveppum
Tómatur
Skerið kartöflur með hýði í þunnar sneiðar. Skerið papriku og lauk smátt og tómat í sneiðar.
Sjóðið frosið grænmetið í litlu og léttsöltu vatni. Takið grænmetið frá, bætið grænmetis og kjúklingakrafti úr í soðið ásamt smurosti.
Raðið í elfast mót kartöflum og grænmeti og setjið´sósuna útá og tómatana efst.
Bakið í ofni í 60 mín við 200 gráður.
Til að gera meira "djúsí" má gera sósu úr smurosti og kaffirjóma og setja rifinn ost ofaná

Kjúklingur, kartöflur og grænmeti allt eldað saman

Kjúklingur
Sítróna
3´hvítlaukar
4 bökunarkartöflur
1 rauðlaukur
4 tómatar
1 zuccini
sveppir
Setjið niðurskorna sítrónu inn í kjúklinginn og kryddið hann eins og vanalega, gott að krydda með smá chayenna pipar. Setjið í ofnpott og takið hvítlaukana í nokkra hluta og setjið í kringum kjúklinginn. (óþarfi að flysja)Skerið bökunarkartöflur í tvennt og kryddið sárið með paprikudufti og setjið í pottinn. Skvettið smá vatni og olíu yfir og eldið eins og venjulegan kjúkling í ofni. Þegar 30 mín eru eftir af steikingartímanum setjið þið gróft niðurskorið grænmetið ofaní pottinn og látið malla. Passið að það sé alltaf vökvi í pottinum.
Nú eruð þið komin með kjúkling, kartöflur og grænmeti og notið soðið sem sósu. Alveg bráðhollt og lygilega gott.

 

Mér hefur fundist svo margir hér inni verið að spá í hollustuna og ekkert nema gott um það að segja :) Mér hefur líka fundist margir hér inni vera dálitlir sælkerar og því ætla ég að deila með ykkur uppskrift úr einni af bókunum mínum og ég lofa ykkur því að hún er æði!


Ítölsk grænmetissúpa

1 laukur
2 gulrætur
1 sellerístilkur (ég sleppi honum yfirleitt)
2 kartöflur (ég set yfirleitt fimm sinnum fleiri!)
100 g sellerírót (hvað er það? sem sagt sleppi því)
1/2 blómkálshöfuð
3 hvítlauksrif (ég lauma yfirleitt fleirum með)
matarolía til steikingar
1 1/2 l vatn
3 grænmetisteningar
400 g tómatar í dós
3 msk tómatþykkni
1 tsk meiran (ég sleppi því oft)
pipar eftir smekk (ég nota allaveganna svört piparkorn)
2 dl pastafiðrildi (farfalle)
2 msk fersk steinselja (örugglega gott en ég nota hana ekki)
3 msk parmesanostur (brill fyrir þá sem eru hrifnir af honum)

1. Saxið lauk, sneiðið gulrætur og sellerístilk og skerið kartöflur og sellerírót í litla bita. Skerið blómkálið í lítil búnt. Merjið eða saxið hvítlaukinn.

2. Hitið olíu í stórum potti og léttsteikið lauk og hvítlauk. Setjið allt niðurskorið grænmeti í pottinn og látið krauma í olíunni í 2-3 mínútur.

3. Bætið vatni og grænmetisteningum, niðursoðnum tómötum og tómatþykkni í pottinn. Kryddið með meirani og pipar (ég set líka alltaf smá salt!)

4. Látið súpuna sjóða við vægan hita í um 20 mínútur og sjóðið pastafiðrildin í súpunni síðustu 10 mínúturnar.

5. Sáldrið saxaðri steinselju og parmesanosti yfir súpuna rétt áður en hún er borin fram.

Berið fram með rjúkandi hvítlauksbrauði og ísköldu vatni

Heimsóknir
Í dag:  85  Alls: 163579
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan