Piparbuff
800 gr nautahakk hrært með
2 eggjarauðum og
2 dl rjóma.
Mótið buff og steikið.
Græn piparsósa.
2 litlir perlulaukar brúnaðir á pönnu
4 dl hvítvín (ekki sætt) og
4 dl soð blandað saman við ásamt
smá smjöri
Soðið niður í ca 10 mín. Rjóma bætt sman við og soðið þar til þykknar,3-4 græn piparkorn
2 tsk franskt sinnep
nokkrir tabasco dropar til bragðbætis.
Tortillakökur með hakki og grænmeti
fyrir 2
4 stórar tortillakökur
300-400 g hakk
1 paprika (rauð t.d.)
1 laukur
Sveppir (magn eftir smekk)
Skera grænmetið og steikja, steikja hakkið.
Hita kökurnar í örbylgjuofni í 1 mínútu eða í 5 - 10 í álpappír í ofni.
Með.
salsa sósa að eigin vali
sýrður rjómi
jafnvel smá rifinn ostur
Smyrð köku með sýrðum rjóma og setur salsa sósu ofan á. Svo hakk og grænmeti og svo ostinn. Loka og snæða.
Shepheard's Pie
1 STÓR djúp panna
1 stór laukur, saxaður
1 box sveppir, skornir
1 stór dós bakaðar baunir
1 bakki nautahakk
1 lítil dós tómatpúrra
1-2 msk hveiti
5-6 oxo (nautakraftur frá uk, hlýtur að geta notað öðruvísi líka)
Krydd (salt, pipar, herbal mix)
mýki lauknn í smá olíu á pönnu,
set sveppina saman við og steiki í smá stund áður en hakkið fær að fljóta með.
púrrunni og baununum hrært útí svo kryddað og hveiti sett til að þykkja.
5-6 oxo leystir upp í smá soðnu vatni og sullað útí
Malli-malli malli ca.20 mínútur
Ég geri heimalagaða kartöflumús, a la amma sín, á meðan hitt mallar, finnst tað best en pakkamús hlýtur að ganga líka.
Svo tegar gumsið er búið að malla set ég tað í eldfast mót, kartöflumúsina yfir, munstra hana með gaffli og svo inn í ofn (200°) tangað til músin fer að brúnast.
Kjöthleifur
1 kg nautahakk
1 bolli haframjöl
1 lítil ds tómatkraftur
1 smátt saxaður laukur
2 egg
salt og pipar e.smekk.
Hrært saman. Sett í form-bakað við 200 gráður í 45 mín.
Gratinerað hakk
500 gr hakk
1 ds niðursoðnir tómatar
½ dl brauðrasp
1 tsk basilikum
½ tsk oregano
salt,pipar
1 græn paprika
1-2 tómatar í sneiðum
1-2 dl rifinn ostur.
Niðursoðnum tómötum og brauðraspi hrært vel samn,hakki og kryddi bætt asamn við.Sett í eldafst form og bakað við 200 gráðu hita í ca 20 mín. Þá er tómatasneiðum og paprikusneiðum raðað ofan á,bakað áfram í 15 mín.
Falið hakk
750 gr hakk
salt pipar
l laukur
1 lítil dós tómatpurré
soð
2 pakkar kartöfflustappa.
Saxið lauk og steikið ásamt hakkinu,kryddið vel. Sett í eldfast mót og tilbúinni kartöfflustöppu breitt yfir
(gott að bæta 1 eggi samn við hana)
Bakað í 15 mín ca við 200 gráður.
Chili pottur
300 gr nautahakk
1 msk smjör
1 laukur
1 hvítlauksrif
ca ½ tsk chiliduft
3 msk tómatpuré
1/2 dós baunir í tómatsósu
½ tsk pipar
1 tsk salt
1 msk soyasósa
Steikið hakkiðog lauk/hvítlauk,kryddið vel-bætið baunum samn við og látið malla í ca 5-10 mín.
Norskur hakkpottur
4-500 gr hakk
1 stór laukur
4-5 dl vatn
10 kartöfflur
3 gulrætur
salt og pipar
annað krydd e.smekk.
Brúnið hakkið og saxaðan lauk, hellið vatni yfir og látið suðuna koma upp. Afhýðið kartöfflurnar og skerið í teninga og bætið samn við ásamt gulrótasneiðum. Kryddið. Látið sjóað þar til kartöfflurnar eru meyrar. Kryddið.
Bylgju hleifur
500 gr nautahakk
500 gr kjötfars
1 beikonbréf
Hrært samn og sett í smurt eldafst mót. kryddið vel með seasonall ofan á-bakað í 45 mín við 200°c . Sulta, grænar baunir ,hrásalat og kartöfflur með.
Ódýr piparsteik
1 kg magurt nautahakk
salt
2 msk græn piparkorn
3 dl rjómi
olía til steikingar
Hnoðið hakkið saman með höndunum, skiprið því í 10 jafna bita og mótið þykk buff. Hitið olíu í þykkbotna pönnu. Þrýstið grænu piparkornunum inn í buffin og steikið þau í 6-8 mín á hvorri hlið og saltið í lokin. Hellið rjómanum í smáskömmtum á pönnuna og látið sjóða stöðugt þannig að hann þykkni. Snúið kjötinu öðru hvoru á meðan.
Svikinn Héri í sparibúningi
1 kg hakk
1-2 egg
brauðraspur
1 dl barbeque sósa
krydd
1 lauf gráðostur
1/2 hvítlauksostur (þessi kringlótti harði)
Hakk sett í skál, eggin út í og kryddið ásamt BBQ sósunni. Þessu blandað vel saman, bætt við brauðraspi þar til blandan er ekki lengur mjög blaut.
Þessu skipt í tvennt og búnar til lengjur úr báðum (svona eins og breið en flöt brauð).
Önnur lengjan sett í ofnskúffu og gerður "skurður" eftir henni endilangri, en þó ekki alveg út á enda báðum megin.
Osturinn settur í litlum bitum í skurðinn og að lokum er hin lengjan sett ofaná allt saman. Passa uppá að ekki sjáist í ostinn og klessa þessu vel saman.
Nú á að vera til svona brauðlaga svikinn héri með ostafyllingu.
"Hérinn" penslaður með BBQ sósu jafnvel má setja beikon lengjur ofan á (eða í skurðinn).
Svo er þetta bara bakað í ofni í ca. 1 klst.
Hakkbuff í ofni
Æðislegur réttur úr nautahakki. Hann kemur frá nýjum eftirlætisréttum.
Efni:
400 gr nautahakk
1/2 kg kartöflur
2 sneiðar franskbrauð
1/2 laukur
salt
pipar
1 tsk paprikkuduft
sósa
40 gr smjör eða smjörlíki
4 msk hveiti
1 1/2 dl kjötsoð (vatn + 2 teningar)
1 lítill laukur
2 dl sýrður rjómi
1dl rifinn ostur
2 msk brauðrasp
Meðhöndlun
Sjóðið kartöflurnar í léttsöltu vatni.
Bleytið brauðið í mjólkinni. Saxið laukinn smátt og blandið brauði og lauk saman við nautahakkið. Kryddið með salti, pipar og papriku.
Mótið átta buff úr hakkinu og brúnið snöggt á pönnu, í smjörlíki eða olíu. Raðið þeim fyrir miðju í smurt, eldfast mót. Afhýðið soðnu kartöflurnar og skerið í sneiðar. Raðið þeim í kringum kjötið.
Sósa.
Bræðið smjör eða smjörlíki í potti, bætið hveitinu í og loks kjötsoði í skömmtum.
Afhýðið laukinn og rífið með rifjárni. Bætið honum út í sósuna. Takið sósuna af hellunni og bætið sýrða rjómanum út í, bragðbætið með salti ef með þarf. Sósan er fremur ljós og mætti því skerpa hana með sósulit. Hellið sósunni yfir kjötið og kartöflurnar. Stráið osti og brauðraspi yfir.
Bakið í 175°C heitum ofni í 15 mínútur.
Fjölskyldukjötbolla
Fyrir 4
Þessi uppskrift er í raun kjötbolluuppskrift, en til að flýta fyrir matreiðslunni er kjötfarsið sett á pönnuna í heilu lagi. Útkoman er ein stór kjötkaka sem gerir mikla lukku hjá krökkunum. Að sjálfsögðu má einnig móta litlar bollur úr farsinu.
200 g svínahakk
500 g nautahakk (eða nauta- og lambahakk)
2 hvítlauksrif, pressuð
1 stór laukur, rifinn
½ dl brauðrasp
1 dl mjólk
1 egg
salt og pipar eftir smekk
2 msk. tómatsósa
1 msk. Dijon sinnep
2-3 msk. olía, smjör eða smjörlíki
Blandið öllu vel saman í skál. Hitið olíuna á djúpri pönnu, setjið farsið á pönnuna með skeið og sléttið yfirborðið. Steikið kjötkökuna við meðalhita í 5-7 mínútur, hvolfið henni síðan á disk og steikið á hinni hliðinni. Með þessu er gott að bera fram kartöflustöppu sem bragðbætt hefur verið með hvítlauk, pastaskrúfur og tómatsósu eða góða sveppasósu og steikta kartöflubáta og að sjálfsögðu saltat.
Góðar hakkbollur
1/2 kíló hakk
1 og 1/2 dl. hveiti
1 smáttsaxaður laukur
1 tsk. salt
1/4 tsk. pipar
1 egg
ca. 3 dl. mjólk
Aðferð: Allt sett í hrærivélaskál og hrært í ca 10 mín.
(galdurinn við að degið verði þétt í sér er að hræra það svona lengi)
steikt á pönnu,
svo er náttúrlega hægt að hafa sósu með þessu
eða hvernig sem maður vill hafa það
Krakkabollur
400gr. hakk
1 mosarella ostapoki
1 ritzkexpakki
1 egg
season all eftir smekk
Allt blandað saman, búnar til litlar bollur.
Steikt á pönnu og sett í eldfast mót.
Sósa;
1/4 rjómi
tómatsósa að smekk
þynnt með mjólk.
Sósunni hellt yfir bollurnar og rifnum osti stráð yfir.
Látið malla í ofni í uþb.20 mín. Og borið fram með kartöflumús.
Ostabuff
1stk egg
400gr hakk
1dl rasp (rúmlega)
1dl rifin ostur
salt og krydd eftir smekk
Sósa:
1-2 dl rjómi hellt yfir buffið (þegar búið er að steikja það, ég geri bollur)
á pönnunni ásamt 1dl vatn og 5-6 msk saxaður laukur. Til viðbótar
er slatta af tómatsósu hellt yfir buffið og látið malla í smástund
)
Hakkbollur með osti
400gr hakk
1 mozzarella ostapoki
1 ritzkexpakki (þarf ekki að vera svo mikið)
1 egg
season all eftir smekk
Allt blandað saman, búnar til litlar bollur, steikt á pönnu og sett í eldfast mót.
Sósa:
1/4 rjómi
tómatsósa eftir smekk
þynnt með mjólk
sósunni hellt yfir bollurnar og ostinum stráð yfir.
ca 20 mín í ofni
gott að hafa kartöflumús með
Góðar Hakkbollur
2. sneiðar heilhveiti brauð
1 dl. léttmjólk
400g. hakk
1. egg
1. laukur
1/2 tsk. basilikum
1/2 tsk. salt
1/4 tsk pipar
2.msk matarolía
rífa brauð í ltla bita og leggja í mjólkina í 2-3 mínútur, hræra svo öllu saman. og steikja svo bollurnar
Kjötbollur Forsetans
500gr Hakk
1-2 egg
ca 200gr mulinn fetaostur
2tsk 1001nótt/Lambakrydd frá Pottagöldrum
Pipar
ca 4tsk pestó/tómatpurre