Ofnbakaður fiskur með rækjum Nýtt
500 g fiskur
100 g rækjur
1/4 laukur, smáttsaxaður
1-2 msk ítalskt sjávaréttakrydd
2 dl vatn ásamt sítrónusafa
2 dl rjómi
olía til steikingar
pipar og salt eftir smekk
gráðostur eða annar ostur eftir smekk
Sósan
Léttsteikið laukinn, bætið vökvanum og kryddi útí, látið krauma í 5 mínútur, rjómanum bætt útí og látið krauma áfram í 5 mínútur, ostinum bætt útí og hrært saman.
Fiskurinn steiktur og kryddaður, settur í eldfast form, setjið rækjurnar yfir og hellið sósunni yfir.
Bakað v/180°C í 20 mínútur
Fiskur með jurtum Nýtt
Fiskflök
1 1/2 dl brauðmylsna
1 hvítlaukur, smátt saxaður
Steinselja smátt söxuð
timian smátt saxað
pipar
1 dl rifinn ostur
Fiskurinn setur í ofnfast mót, brauði og kryddi blandað saman og sett yfir fiskinn
Bakað í ca 20 mínútur v/200°C
Gott að hafa hrísgrjón með.
Fiskur m/sýrðum rjóma Nýtt
Fiskiflök
1 dós sýrður rjómi
sari úr 1/2 sítrónu
pipar
Fiskurinn settur í ofnfast mót, rjómanum og sítrónusafanum hrært saman og sett yfir fiskinn.
Bakað við 200°C í 15-30 mínútur
Fiskur m/eplum og karrí Nýtt
Fiskflök
1 epli
olía eða smjörlíki
1 tsk karrí
1/2 tsk salt
Eplið flysjað og rifið niður á rifjárni, steikt á pönnunni ásamt karríinu.
Fiskflökunum raðað ofan á og kryddað með salti.
Setjið lok eða álpappír yfir og látið standa á minnsta straum í ca 10-15 mínútur.
Fiskur með grænmeti Nýtt
Fiskflök
2 gulrætur
5-6 kartöflur
1 laukur, smátt saxað
pipar, salt, timian og olía eða smjörlíki
Gulrætur og kartöflur sneiddar þunnt, hitað á pönnunni ásamt lauknum og kryddi, fiskinum raðað ofan á. Setjið lok eða álpappír yfir og látið standa á minnsta straum í 15-20 mínútur.
Fiskur með grænmeti í ofni. Nýtt
Fiskflök
1 laukur
1 blaðlaukur
1 papríka
4-6 kartöflur
timían
25 g smjörlíki
Kartöflurnar skornar í þunnar sneiðar, laukur og papríka söxuð smátt, tómatar skornir í sneiðar,sett í ofnfast mót, kryddað. Smjörlíki í bitum, látið yfir.
Bakað v/200°C í 30-40 mínútur.
Hægt að skipta kryddum út eftir smekk íöllum uppskriftum, kryddin frá Pottagöldrum eru mjög góð, s.s. Fiskikrydd, Eftirlæti hafmeyjunnar, Ítalskt sjávarréttakrydd.
Karrífiskur með hrísgrjónum
600 gr fiskflak
2 dl grjón
2 dk súrmjólk
4 msk léttmajones
2 tsk karrí
2 tsk salt
100 gr nýir eða niðurs sveppir
3 msk ostur rifinn
Hrísgrjón eru soðin og sett i botn á eldföstu móti
Súrmjólk, majónes, karry og 1 tsk salt hrært saman
Fisk raðað ofan á hrísgjrjón....saltað
Sveppir skornir niður og dreift yfir fiskinn, þar næst fer sósan og svo að lokum osturinn.
Bakað við 200 gráður
Ýsa með kartöfluflögum
ýsa
aromat krydd og hvítlaukssalt (eða annað eftir smekk)
1 dós sýrður rjómi 18%
kaffirjómi
paprikuflögur (eða aðrar eftir smekk)
mozarella ostur
hrísgrjón
Hrísgrjónin eru soðin en ekki til fulls og sett í botninn á eldföstu móti. Sjóðið aðeins upp á fiskinum og látið renna af honum (annars fer soðið út í sósuna og þynnir hana)og setjið ofan á grjónin. Hrærið saman kaffirjóma og sýrðum rjóma -gætið þess að hafa sósuna ekki of þunna. Setjið kryddin út í sósuna og hellið yfir fiskinn. Myljið flögurnar og stráið yfir fiskinn. Að lokum er osturinn settur yfir. Setjið í 180°C heitan ofn í 10-15 mín.
Fiskréttur Öbbu (mæli með honum)
6 ýsuflök
1 poki sólargrænmeti
1 poki spergilkál
1 dós paprikuostur
1 dós rækjusmurostur
1/2 l rjómi
aromat
pikanta
salt
1/2 msk sykur
Hawarti ostur
Tómatar
Fiskur er soðinn og raðað í eldfast mót. Ostarnir eru bræddir í rjómanum og hellt yfir fiskinn og grænmetið. Hawartiosturinn er settur yfir og svo skreytt með tómatsneiðum.
Bakað við 180°c í 20-30 mín.
Borið fram með fersku salati og snittubrauði
Geggjaður fiskréttur
2-3ýsuflök
1 poki Hrísgrjón
smá gulrætur
1 paprikka
smá blómkál
steiktir sveppir
steiktur rauðlaukur
ostur
Sósa:
1 beikonsmurostu
1 hvítlaukssmurostur
rjómi
Sjóðið hrísgrjónin og setjið þau í eldfast mót. Skerið fiskinn í bita og raðið ofáná. Stráið gulrótinni,papriku og blómkáli. steikið því sveppina og laukinn og setjið ofaná. Bræðið sósuna saman í potti og hellið yfir síðast ostinn. Setjið inn í ofn á 180° í c.a 30 mín.
Fiskréttur Maríu
2-3 flök af ýsu eða þorsk
Hrísgrjón 2-3 pokar
1 peli rjómi
2-3 msk mayones
Sítrónupipar
Karrý
Aromat
Season All
Sjóða fiskinn og hrísgrjón. Hræra saman 1 pela af rjóma og 2-3 stórum msk af mayonesi, setja örlítið af karrý og season all útí.
Hrísgrjón í botn á eldföstu móti,síðan fiskinn og svo rest af grjónum. Hella sósunni yfir og ostur fer síðast yfir.
Bakist í 20 ? 30 mín. á 175°.
Frábæri fiskrétturinn hennar Gullu
1 poki hrísgrjón
2 fiskflök
1 paprika
1 laukur
sveppir eftir smekk
1 dós ananasbitar
SÓSA
ca 3-4 msk maionase
safi af ananas
rjómi ca 1/2 peli
karrý ca 1 tsk
1/4 tsk paprikuduft
Hrísgrjónin eru soðin og sett í botninn á eldföstu móti.Fiskurinn skorinn í bita og settur ofan á hrísgrjónin,kryddaður með sítrónupipar+aromat+karrý.
Grænmeti steikt og kryddað aðeins með seasonall og sett yfir fiskinn,síðan er ananasinn settur þar ofaná.
Sósan er löguð og sett yfir þetta og svo er þetta látið inn í ofn í ca 2o mín þá er rifinn ostur settur yfir og haft inni í um 10 mín í viðbót.Hiti er um 180°c.Gott er að bera þetta fram með hvítlauksbrauði.
Fiskur í veislubúning
1 kg Ýsa eða skötuselur.
1 laukur.
1 rauð paprika söxuð.
1 græn paprika söxuð.
1/2 dós ananaskurl.
1 dós rækjuost.
11/2 dl rjóma.
1 tsk salt.
1/2 tsk sítrónupipar.
1 tsk karrý.
1 súputeningur.
Fiskurinn skorin í sneiðar eða bita og léttsteiktur í olíu eða smjörlíki. Raðið sneiðunum í eldfast mót.
SÓSA
Bræðið 1 msk smjörlíki á pönnu,bætið grænmetinu á og léttsteikið þar til grænmetið er orðið mjúkt. Bætið síðan út á pönnuna.
ananaskurli 1 dós rækjuost og rjóma.
Látið ostinn bráðna við vægan hita og hrærið þessu vel saman. kryddið þetta síðan.
Hellið sósunni yfir fiskinn. Hitið ofninn í 200°C,og bakið réttinn í ca 30 mín.
Gott er að bera fram með þessu hrísgrjón og hvítlauksbrauð.
Tillögur að fiskréttum
Setja fiskinn roðlausan og beinlausan í eldfast mót, kaupir mexicanska súpu, æ man ekki nafnið, hún er appelsínugul á litinn, gerir hana útí 4 dl af vatni í staðin fyrir 8 dl (svo hún sé mjög þykk) og hellir yfir, setur svo ost ofaná og eldar í 20 mínútur og voooolaaa, gæti ekki verið auðveldara og er meira að segja nokkuð gott!
***
Settu soðin hrísgrjón í eldfast form, skerðu niður grænmeti (gulrætur, púrrulauk, brokkoli, papriku, eiginlega bara það sem þér dettur í hug...) settu það yfir hrísgrjónin, dreifðu smurosti yfir, papriku, hvítlauks eða bara það sem þér dettur í hug, skerðu fiskinn í bita og leggðu ofan á allt saman, helltu pínu mjólk yfir allt og svo ost yfir. Inn í ofn og uummmm.... rosa gott!
***
Skera fiskinn í stykki og leggja hvert og eitt í álpappír og krydda hvert fyrir sig,setja svo í ofninn og hafa stillt á grillið. Hriklalega gott og einfalt.
***
referrelative="t" o
pt="75" coordsize="21600,21600" />Grískur plokkfiskur
600 gr útvatnaður saltfiskur
2 stórir laukar, saxaðir
1 lítil dós tómatmauk (purée)
1 bolli vatn
2 lárviðarlauf
Salt eftir smekk
Svartur pipar (vel af honum)
½ bolli ólífuolía
10 litlar kartöflur (flysjaðar)
1. Setjið allt nema kartöflurnar í pott og sjóðið í 10 mínútur.
2. Bætið kartöflunum út í og sjóðið við lágan hita í 45 mínútur.
3. Bætið vatni út í ef rétturinn verður of þurr.
4. Berið fram með góðu brauði.
Nachos-fiskur
800 gr ýsa
5 dl nachos (eftir smekk)
2 ½ dl rasp
1 ½ dl kornflögur
Smá mjólk
1 egg
Salt og pipar
1. Myljið nachos og kornflögurnar smátt og blandið saman við raspið.
2. Sláið egginu og mjólkinni saman.
3. Veltið fisknum upp úr mjólkureggjablöndunni, svo nachosblöndunni og steikið á pönnu.
Meðlæti:
- salat
- hrísgrjón
- salsasósa
- hvítlauksbrauð
- nachos
Bakaður saltfiskur
500 gr saltfiskur
500 gr kartöflur
50 gr smjörvi
½ laukur
½ græn paprika
2 msk hveiti
3 dl mjólk
2 msk parmesanostur
2 msk brauðmylsna
1. Útvatnaður fiskur er látinn í kalt vatn og suðan látin koma hægt upp. Soðinn í 5-10 mínútur. Að suðu lokinni er fiskurinn hreinsaður vel, roð- og beinhreinsaður.
2. Fiskurinn er losaður sundur og settur í smurt eldfast mót.
3. Kartöflurnar eru snöggsoðnar, afhýddar og sneiddar. Raðið þeim ofan á fiskinn í mótinu.
4. Smjörvi er bræddur í potti. Laukur og smátt söxuð paprika látin í krauma í smjörinu þangað til þau verða mjúk.
5. Hveiti er bætt við og jafningurinn hrærður út með mjólk. Á að verða þunnur. Þessu er hellt yfir fiskinn og kartöflurnar.
6. Blöndu af osti og brauðmylsnu er stráð yfir og rétturinn bakaður í heitum ofni í 20 mínútur.
Gott að bera fram með rúgbrauði.
Fiskur með appelsínu- og humarsósu
800 gr ýsa
1 tsk salt
1 tsk olía
1-2 hvítlauksrif
1 dós sýrður rjómi 10%
½ dl mjólk
2 msk humarkraftur (Oscar - svört dós)
Rifið hýði af ½ appelsínu
Fersk tímianlauf
1. Hreinsið fiskinn og skerið í meðalstór stykki og stráið salti yfir þau.
2. Merjið hvítlaukinn og mýkið hann í olíunni.
3. Bætið sýrða rjómanum, vatninu, humarkraftinum, appelsínuhýðinu og tímianlaufum á pönnuna. Sjóðið augnablik og hrærið í á meðan.
4. Leggið síðan fiskstykkin á pönnuna og látið þau sjóða í sósunni þar til fiskurinn er orðinn hvítur í gegn. Passið að ofsjóða hann ekki.
5. Skreytið fiskstykkin með svolitlum rifnum appelsínuberki og stórum rækjum.
Borið fram með soðnum kartöflum og brokkólíi.
Forsetafiskur
3 græn epli
1 græn paprika
6-7 sneiðar beikon
Smjör
Ýsuflak
Hveiti
Pipar
Salt
1 stk Camembert-ostur
Rifinn ostur
1. Afhýðið eplin og skerið í bita. Skerið einnig paprikuna í bita.
2. Beikonið er skorið í 3-4 bita (hver sneið) og steikt í smjöri þar til það er glært.
3. Skerið ýsuflakið í litla bita og veltið því upp úr hveiti, pipar og salti. Steikið við vægan hita.
4. Allt er síðan látið í eldfast mót og Camembert-ostur er látinn í litlum bitum hér og þar ofan á.
5. Yfir allt er síðan dreift rifnum osti.
6. Hitið í 20-30 mínútur við 180°c
Kornflögufiskur með kaldri sósu
2 bollar muldar kornflögur
3 tsk rifinn sítrónubörkur
Salt og pipar
3 tsk sítrónusafi
4 msk smjör
700-800 gr ýsu- eða þorskflök (roðflett)
Sósan:
3 msk léttmajónes
2 msk sýrður rjómi (10%)
3 msk sweet pickle relish
2 msk sítrónusafi
1 msk sætt sinnep
1. Setjið kornflögumylsnuna í skál og bætið sítrónuberkinum, salti og pipar út í.
2. Setjið sítrónusafann í skál, bræðið smjörið og blandið saman við sítrónusafann.
3. Skerið fiskinn í 5 cm strimla (fingur) og penslið með smjörblöndunni. Veltið fiskbitunum síðan upp úr kornflögumylsnunni og raðið í ofnskúffuna (notið bökunarpappír undir).
4. Bakið í 10-15 mínútur.
5. Útbúið sósuna á meðan fiskurinn er í ofninum. Blandið öllu saman sem á að fara í sósuna og geymið í kæli fram að framreiðslu.
Fiskur í hátíðarbúningi
Ýsuflök (1 stórt, eða 2 lítil)
1 banani
2 dl rjómi
2 egg
100 gr rækjur
1 paprika
Ostur
Hveiti
Salt og pipar
Kjöt- og grillkrydd
Rasp
1. Eggin eru þeytt með ½ dl af rjóma og hveitið hrært út í.
2. Fiskurinn er kryddaður beggja megin með salti, pipar og kjöt- og grillkryddi.
3. Fisknum er dýft í rjómablönduna og steiktur við hægan hita á pönnu örlitla stund. Hann er síðan lagður í eldfast fat.
4. Rækjurnar, bananinn og paprikan eru steikt í smjöri og lögð ofan á fiskinn.
5. Afgangurinn af rjómanum er settur yfir og síðan rifinn ostur og rasp.
6. Bakað við 200°c í ca 20 mínútur. Gott að leggja álpappír yfir til að byrja með.
Fljótlegur fiskur
2 ýsuflök
¼ lítri matreiðslurjómi
125 gr sveppasmurostur ( má vera meira magn og öðruvísi ostur)
250 gr sveppir
Salt
Pipar
Paprikuduft
1. Ýsuflökin eru krydduð og þeim raðað í smurt eldfast mót
2. Stráið söxuðum sveppum ofan á, hrærið saman ostinum og rjómanum og hellið yfir. 3. Paprikudufti stráð efst, bakað í 30 mínútur við 200°c.
4. Gott er að setja alls kyns grænmeti í þetta, ferskt eða frosið.
Ofnbakaður fiskur
2 ýsuflök
Sítrónusafi
Salt
Pipar
250 gr rifinn ostur (26%)
Fersk steinselja
1 blaðlaukur
1 dl brauðrasp
50 gr smjörlíki
1. Skerið fiskinn í hæfilega bita, hellið sítrónusafa yfir og kryddið, raðið í eldfast mót.
2. Blandið saman osti, saxaðri steinselju ( 1 dl), söxuðum blaðlauk, brauðraspi og bræddu smjörlíkiog dreifið svo yfir fiskinn.
3. Bakið við 175°c í ca 20 mínútur eða þar til osturinn verður ljósbrúnn.
Fiskpanna Spánverjans
Fyrir 4-6
3 msk ólífuolía
1 stór laukur, saxaður
3 hvítlauksrif, söxuð
4 tómatar, saxaðir
2 tsk paprikuduft
2 lárviðarlauf
1 ½ dl hvítvín eða mysa
Salt og svartur pipar eftir smekk
100 gr rækjur
50 gr rúsínur
700 gr ýsa eða þorskur, roð og beinlaus
Hveiti, salt og pipar
Olía
Furuhnetur
1. Hitið olíuna á pönnu og mýkið laukinn í henni í nokkrar mínútur. Bætið hvílauknum á pönnuna ásamt tómötunum og paprikunni.
2. Hrærið vel í blöndunni og bætið lárviðarlaufinu, hvítvíninu, salti og pipar út í. Látið suðuna koma upp og bætið rækjunum og rúsínunum út í. Takið pönnuna af hitanum.
3. Skerið fiskinn í bita og veltið honum upp úr kryddaðri hveitiblöndu. Snöggsteikið fiskbitana í olíu í nokkrar mínútur.
4. Setjið pönnuna með grænmetisblöndunni aftur yfir hita og leggið fiskbitana varlega út í.
5. Ristið furuhneturnar á þurri pönnu og stráið þeim yfir réttinn þegar hann er borinn fram.
Berið fram með nýjum kartöflum sem gott er að velta upp úr hvítlauksolíu.
Ýsa með rjómalagaðri grænmetisblöndu
- Fyrir 4
700 gr ýsuflak
Salt og pipar eftir smekk
Mjólk
Hveiti
1 msk smjör eða smjörlíki
1 laukur, skorinn í sneiðar
100 gr ferskir sveppir, skornir í sneiðar
4 tómatar, saxaðir
1 msk sojasósa
½ tsk karrý
Svartur pipar eftir smekk
1 lítill blaðlaukur, skorinn í sneiðar
1 dl matreiðslurjómi
1. Skerið fiskinn í bita oog kryddið með salti og pipar.
2. Dýfið ýsubitunum í mjólk og veltið síðan upp úr hveiti.
3. Bræðið smjörið á pönnu og steikið fiskinn þar til hann er ljósbrúnn að lit. Takið af pönnunni og haldið heitum á meðan grænmetið er steikt.
4. Bræðið e.t.v. aðeins meira smjör á pönnunni og steikið laukinn og sveppina í nokkrar mínútur. Bætið tómötunum út í og kryddið með sojasósu, karrý, salti og pipar. Látið krauma í 5 mínútur, bætið þá blaðlauknum á pönnuna og hellið rjómanum yfir. Látið krauma í 5 mínútur.
5. Setjið grænmetisblönduna á fat og raðið ýsubitunum yfir.
Fiskur með pestói
Rauðlaukur
Hvítlaukur
Paprika
Tómatar og annað grænmeti sem þér dettur í hug.
Ýsuflök, sneidd í bita
Rautt pestó
Fetaostur
1. Grænmeti sett í botninn á eldföstu móti. Ýsubitarnir smurðir með pestói og settir ofan á grænmetið.
2. Fetaosturinn fer síðan þar ofan á ( gott er að láta mikið af olíunni með).
3. Allt í 180° heitan ofn þar til fiskurinn er orðinn soðinn u.þ.b. 20 mínútur.
Borið fram með hrísgrjónum.
Fiskigratín með piparosti
- Fyrir 4 -
600 gr ýsuflök, soðin
4 msk smjör
4 msk hveiti
2 dl fisksoð
2 dl mjólk
1 tsk salt
100 gr piparostur
2 eggjarauður
2 eggjahvítur
Brauðrasp
1. Bakið sósuna upp (smjörlíki + hveiti) og þynnið með soði og mjólk.
2. Skerið piparost í þunnar sneiðar, setjið hann í sósuna og hrærið þar til hann er bráðinn. Saltið þá sósuna.
3. Takið pottinn af hellunni og látið sósuna kólna aðeins áður en eggjarauðum er hrært í.
4. Setjið fisk í skál og hrærið þannig að hann losni vel í sundur. Blandið sósu saman við. 5. Stífþeytið eggjahvítur og bætið þeim varlega útí.
6.<span style="m