13.2.2008 05:14:37 / Helga
Rjómakaramellur
Rjómakaramellur
3 dl rjómi
2 1/2 dl sykur
1/2 dl sýróp
25g smjör
möndlur eða kakó til að bragbæta
Rjóma, sykri og sýrópi blandað saman og látið sjóða við vægan hita í 1klst (hef grun um að 40mín sé alveg nóg). Síðan er smjöri og möndlum blandað við. Allt sett í mót og svo í kæli.
Sniðugt að setja þetta í litlu álformin sem eru eins og muffinsformin. Annars má setja þetta á plötu klædda pappír og skera niður á eftir. Gæti verið dálítið stíft að skera, en þá getur verið gott að skera rendur í lagið sem sett er á plötuna þegar aðeins er farið að kólna.